Öskjuhlíð, fólkvangur í miðri borg Sigríður Sigurðardóttir skrifar 10. apríl 2012 06:00 Reykjavíkurborg sótti um hjá Evrópusambandinu um að vera græn höfuðborg og komst í úrslit. Borgirnar sem verða fyrir valinu eru metnar út frá ýmsum hliðum borgarlífsins þ.m.t. grænum svæðum og þurfa að huga að sjálfbærni innan borgarmarkanna með tilliti til velferðar íbúa og varðveislu menningararfsins. Velferð er hluti af sjálfbærri hugsun og því mikilvægt að Reykjavíkurborg fari varlega þegar deiliskipulag er gert með græn svæði. Ég legg til að Reykjavíkurborg sæki um til Umhverfisstofnunar að Öskjuhlíðin verði gerð að fólkvangi. Tilgangurinn með þessum fólkvangi ætti að tryggja aðgengi íbúa að náttúru innan borgarmarkanna og að ekki fari forgörðum sú saga og náttúrufyrirbæri sem þar er að finna. Almenningur, ferðamenn og nemendur gætu þá notið umhverfisins og fræðst um sögu borgarinnar og um leið mætt markmiðum í umsókn sinni til Evrópusambandsins. Fólkvangurinn Öskjuhlíð getur boðið upp á líflegt safnasvæði. Þar er hægt að nefna sögu flugsins, sögu seinni heimstyrjaldarinnar, jarðfræði, sögu heita og kalda vatnsins og ýmsar náttúruminjar. Öskjuhlíðin var áður melur en um 1950 var hafin þar skógrækt og þar er því einnig saga skógræktar á Íslandi. Gera mætti Kvennasögusafninu hærra undir höfði á þessum slóðum og jafnvel koma fyrir ÍslandsGátt sem Landvernd er með á stefnuskrá sinni. Ekki er nauðsynlegt að byggja ný hús fyrir þessi söfn. Það þarf að skoða möguleika á þeim húsum sem fyrir eru við Öskjuhlíðina. Á deiliskipulagi til ársins 2024 er gert ráð fyrir stríðsminjasafni í gömlum húsum við Nauthólsvíkina og þeim húsum veitir sannarlega ekki af upplyftingu. Koma þarf upp upplýsingaskiltum við merka staði og minjar og fuglaskoðunarhús með útsýni yfir Fossvoginn. Einnig er hægt að hugsa sér samstarf við aðila sem fyrir eru á svæðinu s.s. Isavia og Háskólann í Reykjavík. Öskjuhlíðin er ein stór útikennslustofa þar sem grunnskólanemendur ættu að hafa aðstöðu og tækifæri til vettvangsnáms. Nú þegar er skipulögð safnfræðsla víða í borginni fyrir grunnskólanemendur og ferðamenn. Öskjuhlíð – fólkvangur þarf að bjóða upp á slíkt hið sama í samstarfi við Náttúruskóla Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur. Samgöngur þarf að bæta til muna og horfa sérstaklega til aðgengis hjólandi vegfarenda. Ferðir strætisvagna þurfa að vera mun tíðari og umhverfisvænn smávagn gæti gengið frá miðbæ Reykjavíkur að Víkinni, sjóminjasafni, meðfram Vatnsmýrinni og að HR. Safnavagn sem þessi gæti haft leið meðfram Fossvoginum að Hamraborg og tengst þar safnasvæði Kópavogs. Göngustígur sem liggur norður-suður þarf að vera upplýstur og tengjast betur almenningssamgöngum og göngustígakerfi við Bústaðaveg. Öskjuhlíðin er perla í miðri borg, opið grænt svæði sem því miður hefur verið plokkað í frá öllum hliðum með efnistöku og byggingum og ég tel rétt að staldra nú við og huga að framtíðinni. Rökin fyrir byggingu Perlunnar á sínum tíma voru m.a. að fegra ásýnd Öskjuhlíðar þar sem tankarnir þóttu ekki mikil prýði. Sitt sýnist hverjum um það en víst er að Perlan fangar athygli áhorfandans og dregur að sér ferðamenn. Útsýnið frá Perlunni er einstakt og bygging af einhverjum toga skerðir útsýnið þaðan auk þess að breyta allri ásýnd hlíðarinnar. Fleiri byggingar hvort sem er efst á henni eða við hana skerða þessa ásýnd. Hugmyndin um að koma fyrir Náttúruminjasafni Íslands efst á Öskjuhlíðinni er í mótsögn við hlutverk safnsins sem er m.a. náttúruvernd, og að varpa ljósi á samspil manns og náttúru og þar af leiðandi fellur hugmyndin um sig sjálf. Frekar ætti að nýta Perluna undir þær hugmyndir sem ég hef áður rakið. Náttúruminjasafnið ætti betur heima vestan við íþróttasvæði Vals og væri þannig í beinum tengslum við Tjörnina, Vatnsmýrina og Öskjuhlíð-fólkvang. Reykjavík væri betri staður ef Öskjuhlíðin fengi héðan í frá að vera ósnert af byggingaframkvæmdum og gerð að fólkvangi þar sem bæði íbúar landsins og erlendir ferðamenn gætu notið náttúrunnar og fræðst um sögu Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Skoðun Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun