Rákust á Galliano á tískuvikunni 3. mars 2012 11:00 Fatahönnunarnemarnir Guðrún Helga Kristjánsdóttir og Rakel Jónsdóttir koma með tilboð frá tískufrömuðinum Manish Arora heim frá tískuvikunni í París. Mynd/ElísabetGunnars „
Hann var bara ósköp venjulegur með yfirvaraskeggið sitt,“ segir fatahönnunarneminn Guðrún Helga Kristjánsdóttir um fatahönnuðinn fræga John Galliano sem hún rakst á á tískuvikunni í París. Vinkonurnar Guðrún Helga og Rakel Jónsdóttir eru staddar í hringiðu tískunnar á tískuvikunni í París en báðar stunda þær nám í fatahönnun hjá Listaháskóla Íslands. Nemendum gefst kostur á að fara í starfsnám í fimm vikur til Parísar og fer dvölinni senn að ljúka hjá stöllunum en báðar hafa þær verið að vinna hjá markaðssetningarfyrirtækinu Totem sem sér um markaðsmál og skipuleggur tískusýningar fyrir fatahönnuði í París. „Stemningin er mjög skemmtileg í París núna. Hér eru tískubloggarar með myndavélar á lofti hvert sem maður lítur. Maður verður var við margar skemmtilegar týpur út um allt,“ segir Guðrún Helga og bætir við að þær hafi nú rekist á nokkur þekkt andlit úr tískuheiminum eins og Zandra Rhodes, Bernhard Vilhelm og John Galliano. John Galliano var einmitt rekinn frá tískuhúsinu Dior í fyrra er hann gerðist sekur um að fara með niðrandi ummæli í garð gyðinga á bar í París, en það var einmitt fyrir utan þann bar sem stúlkurnar rákust á kappann. „Hann var ekki eins flottur og við héldum að hann mundi vera.Hann er samt alltaf svalur.“ Stúlkurnar eru í skýjunum með dvöl sína í París og hafa meðal annars unnið fyrir hönnuðinn Manish Arora sem hreifst af vinnu stúlknanna. „Það var mikill heiður að vinna með þessum tískufrömuði og hann bauð okkur að koma til sín í starfsþjálfun til Indlands. Hver veit nema maður skelli sér?“ - áp
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira