Jón hafnar ábyrgð á milljarðaláni Baugs 13. janúar 2012 06:45 Stefnt Lárus Welding, Þorsteinn M. Jónsson og Jón Sigurðsson eru meðal þeirra sem slitastjórnin mun stefna vegna málsins. Fréttablaðið/rósa
Jón Ásgeir Jóhannesson, einn þeirra sem slitastjórn Glitnis hefur ákveðið að stefna til greiðslu skaðabóta vegna fimmtán milljarða króna lánveitingar til Baugs í árslok 2007, segist engin áhrif hafa haft á ákvörðunina um lánið. Slitastjórnin telur sig hins vegar búa yfir sönnunum um annað. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær mun slitastjórn á allra næstu dögum stefna níu manns til greiðslu skaðabóta að upphæð 6,5 milljarðar vegna lánsins, sem Baugur fékk til að taka þátt í hlutafjárútboði FL Group. Þessir níu eru Jón Ásgeir, Lárus Welding og öll sjö manna stjórn bankans á þessum tíma. Í stjórninni sátu Þorsteinn M. Jónsson, Jón Sigurðsson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Björn Ingi Sveinsson, Pétur Guðmundarson, Haukur Guðjónsson og Katrín Pétursdóttir. Jón Ásgeir var á þessum tíma aðaleigandi Baugs og stjórnarformaður FL Group en gegndi engri formlegri ábyrgðarstöðu í Glitni. Engu að síður telur slitastjórnin sig hafa sannanir um að hann hafi komið með skaðabótaskyldum hætti að ákvörðuninni um lánveitinguna, sem að endingu hafi bakað bankanum 6,5 milljarða króna tjón. Fram kom í Kastljósi RÚV í gær að Jón Ásgeir hafi sjálfur sent Lárusi Welding drög að lánasamningnum. Þessu vísar Jón Ásgeir á bug í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins. „Málið fékk eðlilega afgreiðslu í stjórn bankans,“ segir hann. „Ég hafði engin afskipti eða áhrif á stjórnarmenn sem fjölluðu um málið og tóku lokaákvörðun. Það er óumdeilt að til eru tugir tölvuskeyta milli Glitnis og Baugs varðandi málið sem sýna svo ekki verður um villst að málið fór í eðlilegan farveg.“ Hann segir enn fremur að sér sé kunnugt um að stjórnendur og stjórnarformaður Glitnis hafi ekki tekið þátt í umræðum um þessa lánveitingu. Jón Ásgeir segir að Baugur hafi einungis fengið rúman þrjá og hálfan milljarð greiddan út af láninu til að byrja með en afgangurinn hafi orðið eftir sem bundin bankainnistæða. Fimm milljarðar af henni hafi svo verið greiddir út árið 2008 til að gera upp aðrar skuldir Baugs við bankann. Jón Ásgeir segir sorglegt að horfa upp á vinnubrögð slitastjórnarinnar, ekki síst í ljósi þess að hún hafi verið gerð afturreka með málsókn sína á hendur honum og sex öðrum í New York. Þá sakar hann Steinunni Guðbjartsdóttur, formann slitastjórnarinnar, um að hafa logið að breskum dómstólum um milljarðaeignir hans. „Það þarf að taka öllu með fyrirvara sem kemur frá þessu pari sem skipar slitastjórn Glitnis.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira