Stíflugarðar á floti – um gagnslítil og stórskaðleg gjaldeyrishöft Árni Páll Árnason skrifar 10. apríl 2012 06:00 Hert gjaldeyrishöft, meint brot Samherja á gjaldeyrislöggjöfinni og misheppnað gjaldeyrisútboð Seðlabankans nú nýlega eru atburðir sem kalla á endurmat á þeirri umgjörð sem við höfum búið íslensku atvinnulífi með gjaldeyrishöftum. Undan því endurmati getur enginn vikist. Gjaldeyrishöft eru hörmuleg. Það vitum við af áratuga reynslu og það sjáum við nú sífellt skýrar með hverjum degi sem líður í viðjum hafta. Sá ágæti hagfræðingur Dr. Benjamín J. Eiríksson kallaði höft „stíflugarða á floti“ og það var réttnefni. Fé finnur sér farveg. Höft breyta þeim farvegi, gera hagkvæma hluti óhagkvæma og öfugt. Krónan fellur, þrátt fyrir að höft séu hert og tekið á undanskotum. Í höftum verða til spéspeglar viðskiptalífsins – þeir sem hafa hag af höftum og spila á það skakka gangverk sem höftin skapa. Menn sem hafa arð af viðskiptum sem bara eru arðbær vegna haftanna – viðskiptum á borð við þau skuldabréfaviðskipti sem gerð voru ólögmæt með síðustu lagabreytingum. Höft hafa annan stóran ókost: Þau skekkja alla sýn okkar á hvað er mikilvægast í efnahags- og atvinnuþróun. Skyndilega fer að skipta allra mestu máli að höftin „leki ekki“ og að þau „virki“. Þau kalla auðvitað á gjaldeyriseftirlit, sem síðan verður sífellt viðameira ef það á að eiga einhverja von um að takast ætlunarverk sitt. Það tekst hins vegar aldrei. Reynsla allra þjóða er sú að það sé óframkvæmanlegt að viðhalda höftum til lengdar nema með efnahagslegri einangrun og óbætanlegu tjóni á innviðum samfélagsins. Þess vegna eru höft aðeins nothæf sem skammtímaaðgerð. Þversögnin er samt sú að þar sem þau eru sett á, standa þau yfirleitt í áratugi. Gott og vel – höftin voru sannarlega óhjákvæmileg til að stöðva stjórnlaust fall krónunnar í árslok 2008. Og gjaldeyriseftirlit er óumflýjanlegt meðan höft eru við lýði. Og öllum ber að fylgja lögum og virða. Hinn siðferðilegi og heimspekilegi vandi við höft er hins vegar sá að með þeim er athæfi, sem áður var fullkomlega löglegt og er samkvæmt almennri réttlætisvitund okkar siðlegt, gert ólögmætt. Athæfi sem er sjálfsagt og eðlilegt í öllum nágrannaríkjum okkar verður skyndilega glæpsamlegt á Íslandi einu. Og það sem meira er: EES-samningurinn kveður beinlínis á um rétt til einstaklinga og fyrirtækja til óheftra milliríkjaviðskipta með fjármagn. Höftin eru ósamrýmanleg EES-samningnum, nema sem neyðaraðgerð. Við erum því annars vegar með alþjóðlegt regluverk sem hefur lagagildi á Íslandi sem veitir rétt til að gera eitthvað og svo önnur innlend lög sem gera sama hlut glæpsamlegan. Sniðganga eða raunveruleg viðskipti?Það eru margvísleg tilvik brota á gjaldeyrislöggjöfinni, sem upp geta komið. Augljóst er að hafa þarf virkt eftirlit með viðskiptum sem beinlínis er ætlað að koma peningum út úr landinu í bága við gjaldeyrishöftin og reyna að uppræta þau. Nýlegasta dæmið um slíka sniðgöngu eru snúningar með kaup og sölu á skuldabréfum til skamms tíma, þar sem menn nýta sér höftin til að skapa sér tekjur af þvætti peninga inn og út úr landinu. Gjaldeyriseftirlitið hefur unnið að því að koma upp um slík mál. Fyrir einn kerfislægan leka af þessu tagi var lokað með lagabreytingum fyrir nokkrum vikum, þegar stöðvuð var svikamylla með stutt íbúðabréf, sem nýtt höfðu verið til að koma milljörðum króna út fyrir höft. Lokað var fyrir þann möguleika að erlendir aðilar gætu keypt gjaldeyri til að flytja úr landi verðbætur af höfuðstól verðtryggðra skuldabréfa sem koma á gjalddaga. Þessi lagabreyting var auðvitað óhjákvæmileg, en hana hefði mátt gera fyrr. Áfram er eðlilega fylgst með ýmiss konar hreyfingum fjár milli landa, til að reyna að tryggja að um raunveruleg viðskipti sé að ræða. Meint brot Samherja á gjaldeyrislöggjöfinni virðast hins vegar nokkuð annars eðlis, ef marka má fréttir fjölmiðla. Það virðist snúast um hvernig verðlagningu fisks er hagað milli veiða og vinnslu. Verðlagning milli veiða og vinnslu er áratugagamalt þrætuepli hér í samfélaginu og þar takast á tvö sjónarmið, sem bæði byggja á sterkum rökum. Til að mæta ólíkum sjónarmiðum í því efni hefur verið heimilt að reka saman veiðar og vinnslu en líka mælt fyrir um að meta skuli upp verð við þær aðstæður, eftir tilteknum leikreglum, til að tryggja sjómönnum eðlilegan skiptahlut. Töluvert mikið rekstrarhagræði og verðmætasköpun fylgir samrekstri veiða og vinnslu og fiskvinnsla á stórum landsvæðum byggir algerlega á því að samrekstur sé mögulegur. Innri verðlagning milli veiða og vinnslu í eigu eins aðila er þannig óhjákvæmilegur fylgifiskur þessa rekstrarforms í sjávarútvegi. Það er verulegt áhyggjuefni ef hefðbundin innri verðlagning milli veiða og vinnslu er orðin glæpur vegna gjaldeyrishaftanna einna. Það þýðir í reynd að höftin eru farin að breyta í grundvallaratriðum rekstrarumhverfi venjulegra fyrirtækja í hefðbundnum rekstri og breyta þeim forsendum sem efnahagslífið hefur unnið eftir áratugum saman. Höftin valda ómældum skaðaEf sú er raunin verða höftin fljótt enn meiri viðskiptahindrun en hingað til og hætt er við að þau auki enn á efnahagslega einangrun landsins. Samherji er til dæmis alþjóðlegt fyrirtæki sem stundar sjávarútveg á heimsvísu og hefur umtalsvert val um hvar þunginn í starfseminni liggur. Fyrir liggur sú afstaða forsvarsmanna Marels og Össurar að langlundargeð þeirra gagnvart höftunum sé á þrotum. Flest alþjóðleg fyrirtæki okkar vaxa nú um stundir erlendis, meðal annars vegna haftanna. Sú hætta er því raunveruleg að við missum ekki bara úr landi vöxt þessara fyrirtækja heldur líka höfuðstöðvar þeirra og skatttekjur sem þeim fylgja. Það að alþjóðleg fyrirtæki á Íslandi hafi ama af höftunum er ekki það versta. Mun verra er að engin ný alþjóðleg fyrirtæki munu ná að vaxa frá íslenskum rótum þegar litið er til framtíðar í skjóli svona hafta. Þess í stað munu nýir sprotar aðeins ná því að vaxa kyrkingslega á bakvið við múra. Höftin hafa margvísleg önnur neikvæð áhrif. Þau koma í veg fyrir erlenda fjárfestingu, því erlendir aðilar treysta ekki innlendu rekstrarumhverfi. Verðbólga hefur verið þrálát undanfarin misseri. Ýmislegt bendir til að það megi að einhverju leyti rekja til þess að innflutningsfyrirtæki séu að einhverju leyti farin að safna gjaldeyriseign erlendis, meðal annars með því að láta veitta afslætti ekki skila sér í innflutningsverði. Útflutningsfyrirtæki geta líka farið í kringum höftin með viðskiptum við dótturfyrirtæki erlendis. Höft skaða þannig almennt viðskiptasiðferði. Á árum áður ollu höftin því að áhersla eigenda fyrirtækja var meiri á að hagnast á höftunum – eða að minnsta kosti að tapa ekki á þeim – en að á rekstrarafkomu fyrirtækjanna. Þessi hörmungarsaga ætti að valda því að lausn á þeim vanda sem gjaldeyrishöftin skapa væri höfuðverkefni íslenskra stjórnmála. Í öllum löndum ættu stjórnmál að snúast um lausn á þessum bráðavanda sem læsir landið í þriðjaheimsviðskiptaumhverfi, eyðileggur tækifæri til verðmætasköpunar og brýtur niður heilbrigt viðskiptasiðferði. En svo er ekki. Enn má treysta Íslendingum til að hunsa þau verkefni sem mestu skipta en eyða þess í stað orku sinni í þras um titlingaskít, eins og Kiljan benti á að væri þjóðarlöstur forðum. Það er þvert á móti svo afkáralegt að enginn stjórnmálaflokkur hefur sérstaka skýra sýn um lausn á haftavandanum sem pólitísku úrlausnarefni. Sumir benda að vísu á að vandann megi leysa í tengslum við upptöku annars gjaldmiðils – meðal annars í mínum flokki – en útfærð og trúverðug stefna í þá veru hefur ekki verið sett fram vegna þeirrar pólitísku lömunarveiki í Evrópumálum, sem leiðir af núverandi stjórnarsamstarfi. Fyrir vikið geta allir sameinast um að slá morgundeginum á frest. Staðreyndin er samt sú að enginn sem nær máli – hvort heldur er innanlands eða utan – hefur lengur trú á að höftum verði aflétt í fyrirsjáanlegri framtíð með þeim meðölum sem tiltæk eru. Þessi staða kallar á nýjar lausnir. Um þær fjalla ég í næstu grein. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Páll Árnason Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar