Innlent

Tveir með fölsuð vegabréf um borð í Norrænu

Tveir erlendir karlmenn voru handteknir við komu Norrænu til Seyðisfjarðar í gær, grunaðir um að hafa framvísað fölsuðum skilríkjum.

Þeir framvísuðu grískum vegabréfum, en annar hefur játað að vera frá Georgíu. Mennirnir, sem báðir eru á miðjum aldri, eru enn í haldi lögreglu og verða að líkindum ákærðir fyrir tiltækið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×