Horfa bjartari augum til framtíðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. janúar 2012 13:04
Stjórnendur fyrirtækja virðast líta ögn bjartari augum til framtíðarinnar en áður var, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Capacent fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann. Þeim stjórnendum fyrirtækja sem telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar hefur fækkað hlutfallslega síðustu mánuði, samkvæmt könnuninni. Nú telja 67% stjórnenda aðstæður vera slæmar en hlutfallið var 72% í síðustu könnun sem gerð var fyrir tveimur mánuðum síðan. 29% telja að þær séu hvorki góðar né slæmar en 4% að þær séu góðar. Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að þungt sé yfir stjórnendum, þar sem fjórir af hverjum fimm telja aðstæður slæmar, og enginn stjórnandi í sjávarútvegi telur aðstæður góðar. Á höfuðborgarsvæðinu telja þrír af hverjum fimm aðstæður vera slæmar en 5% að þær séu góðar. Jákvæðasta matið á núverandi aðstæðum er í ýmsum þjónustugreinum. Þegar stjórnendur eru spurðir um horfur næstu sex mánuði sést breyting frá fyrri mánuðum. Nú telja 22% stjórnenda að aðstæður batni en þeir voru 17% fyrir tveimur mánuðum, en sem fyrr telja langflestir, eða 61%, að þær breytist ekki. Stjórnendur á höfuðborgarsvæðinu eru mun bjartsýnni. Þar sjá 26% fram á bata, en á landsbyggðinni sjá 9% fram á bata. Tæplega 30 þúsund starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum í könnuninni. Ætla má af svörum stjórnendanna að starfsmönnum þeirra fækki um 100-200 á næstu sex mánuðum, eða um 0,3-0,7%. Langflestir, eða þrír af hverjum fimm, búast við óbreyttum starfsmannafjölda á næstu sex mánuðum, 17% áforma fjölgun starfsmanna en 25% búast við fækkun.
Mest lesið Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira