Kverkatak forsetans Ástþór Magnússon skrifar 28. apríl 2012 06:00 Ólafur Ragnar Grímsson þorir ekki að mæta mér og öðrum forsetaframbjóðendum í kappræður um málskotsrétt forseta á baráttudegi verkalýðsins 1. maí þar sem í tilefni dagsins átti einnig að velta upp þeirri spurningu hvort forsetinn geti með einhverjum hætti staðið vörð um hagsmuni almennings í endurreisninni. Starfsstúlka Ólafs sendi það svar að hann vilji „sýna mótframbjóðendum sínum virðingu" með því að neita að mæta þeim á jafnréttisgrundvelli í kosningabaráttunni til að skilja kjarnann frá hisminu í umræðum um málskotsréttinn. Með þessu sýnir Ólafur hins vegar lítilsvirðingu og heldur forsetakosningunum í gíslingu. Þótt Ólafi hafi tekist um tíma að blekkja þjóðina með lýðskrumi blekkir hann mig ekki. Forsetinn sló sig til riddara með leikriti þar sem hann spilaði með málsskotsréttinn eftir eigin hentugleikum. Fyrst átta árum eftir að hann tók við embætti þegar kostunaraðilar framboðs hans (eigendur Norðurljósa-365 miðla) vildu með öllum ráðum stöðva fjölmiðlafrumvarpið. Stór mál m.a. Kárahnjúkar, öryrkjamálið og fyrstu Icesave-lögin fóru hins vegar í gegn með samþykki forseta. Síðan eftir fimmtán ár í embætti þegar skoðanakannanir sýndu vaxandi óvinsældir Ólafs í kjölfar útrásarvíkingasmjaðursins þá greip hann til þess ráðs að nota aftur málskotsréttinn. Það gerði Ólafur í örvæntingafullri tilraun til að ná lýðhylli við nýju keisarafötin sín og hafði þetta lítið með hagsmuni þjóðarinnar að gera. Á meðan erlendir vogunarsjóðir liggja eins og blóðsugur á bankakerfi landsmanna og soga til sín peninga, heimili og atvinnufyrirtæki galar forsetinn í útlöndum eftir afsökunarbeiðni afdankaðs stjórnmálamanns í Bretlandi í stað þess spyrna við yfirstandandi bankaráni frá Bessastöðum. Ólafur Ragnar er tækifærissinni sem verður aldrei forseti fyrir neinn nema sjálfan sig sagði samstarfsmaður hans til margra ára, Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra, við mig áður en lýðskrumarinn var kjörinn í embætti forseta Íslands árið 1996. Nú er mál að Ólafur láti af því kverkataki sem hann er með á lýðræðinu, kveði niður sinn eigin Bessastaðadraug og þær kommúnísku hugsjónir sínar að sitja til eilífðarnóns á forsetastóli. Farðu í friði Ólafur og gefðu þjóð þinni tækifæri til að velja sér nýjan forseta eftir lýðræðislegum leikreglum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Sjá meira
Ólafur Ragnar Grímsson þorir ekki að mæta mér og öðrum forsetaframbjóðendum í kappræður um málskotsrétt forseta á baráttudegi verkalýðsins 1. maí þar sem í tilefni dagsins átti einnig að velta upp þeirri spurningu hvort forsetinn geti með einhverjum hætti staðið vörð um hagsmuni almennings í endurreisninni. Starfsstúlka Ólafs sendi það svar að hann vilji „sýna mótframbjóðendum sínum virðingu" með því að neita að mæta þeim á jafnréttisgrundvelli í kosningabaráttunni til að skilja kjarnann frá hisminu í umræðum um málskotsréttinn. Með þessu sýnir Ólafur hins vegar lítilsvirðingu og heldur forsetakosningunum í gíslingu. Þótt Ólafi hafi tekist um tíma að blekkja þjóðina með lýðskrumi blekkir hann mig ekki. Forsetinn sló sig til riddara með leikriti þar sem hann spilaði með málsskotsréttinn eftir eigin hentugleikum. Fyrst átta árum eftir að hann tók við embætti þegar kostunaraðilar framboðs hans (eigendur Norðurljósa-365 miðla) vildu með öllum ráðum stöðva fjölmiðlafrumvarpið. Stór mál m.a. Kárahnjúkar, öryrkjamálið og fyrstu Icesave-lögin fóru hins vegar í gegn með samþykki forseta. Síðan eftir fimmtán ár í embætti þegar skoðanakannanir sýndu vaxandi óvinsældir Ólafs í kjölfar útrásarvíkingasmjaðursins þá greip hann til þess ráðs að nota aftur málskotsréttinn. Það gerði Ólafur í örvæntingafullri tilraun til að ná lýðhylli við nýju keisarafötin sín og hafði þetta lítið með hagsmuni þjóðarinnar að gera. Á meðan erlendir vogunarsjóðir liggja eins og blóðsugur á bankakerfi landsmanna og soga til sín peninga, heimili og atvinnufyrirtæki galar forsetinn í útlöndum eftir afsökunarbeiðni afdankaðs stjórnmálamanns í Bretlandi í stað þess spyrna við yfirstandandi bankaráni frá Bessastöðum. Ólafur Ragnar er tækifærissinni sem verður aldrei forseti fyrir neinn nema sjálfan sig sagði samstarfsmaður hans til margra ára, Steingrímur Hermannsson, fyrrum forsætisráðherra, við mig áður en lýðskrumarinn var kjörinn í embætti forseta Íslands árið 1996. Nú er mál að Ólafur láti af því kverkataki sem hann er með á lýðræðinu, kveði niður sinn eigin Bessastaðadraug og þær kommúnísku hugsjónir sínar að sitja til eilífðarnóns á forsetastóli. Farðu í friði Ólafur og gefðu þjóð þinni tækifæri til að velja sér nýjan forseta eftir lýðræðislegum leikreglum.
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun