Róbert: Ætlaði að standa mig í dag Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 18. janúar 2012 22:19 Róbert huggar Kenneth Klev. mynd/vilhelm
Línumaðurinn Róbert Gunnarsson átti algjörlega stórbrotinn leik á línunni hjá íslenska liðinu í kvöld. Hann skoraði úr öllum níu skotum sínum í leiknum og fiskaði þess utan tvö vítaskot. Róbert og Kári Kristján línumenn höfðu lofað því að raka skeggið sitt ef þeir myndu ekki skora í þessum leik og Róbert bjargaði skegginu strax í fyrstu sókn með flottu marki. "Þetta var nú ekki bara út af því að ég vildi missa skeggið. Ég var hrikalega svekktur með sjálfan mig eftir Króatíuleikinn. Það var búið að ganga vel í undirbúningnum. Mér fannst þetta vera að koma og ég veit ekki hvað gerðist í Króatíuleiknum," sagði Róbert. "Ég ætlaði heldur betur að standa mig vel í dag og það gekk upp. Ég veit það er klisja en þessi frammistaða hefði ekki skipt neinu máli ef við hefðum tapað. Ég er því eðlilega æðislega ánægður að fá þessi tvö stig í dag," sagði Róbert. "Við höfum oft tapað í svona leikjum. Það var æðislegt að vera réttu megin við borðið núna. Ég skil vel hvernig Norðmönnunum líður. Það var eins gott að við unnum því við þurfum að umgangast þá mikið á hótelinu og ég hefði ekki viljað vera mikið í kringum þá ef við hefðum tapað. "Þessi leikur hefði getað farið á hvaða veg sem er. Nú erum við í skýjunum en ef við hefðum tapað hefði allt verið ömurlegt. Það er hrikalega stutt á milli í þessu. Þetta var ekki stórkostlegur leikur af okkar hálfu og sérstaklega í vörninni. Við munum bæta það. Það er skrítið að vinna leik þar sem við erum ekkert ofboðslega góðir og tapa svo fyrir Króatíu þar sem við vorum góðir."
Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira