Repúblikanar skoða gullfót undir dalinn 29. ágúst 2012 09:00 Mitt Romney Forsetaframbjóðandi repúblikana.
Repúblikanaflokkurinn, annar af stóru flokkunum tveimur í Bandaríkjunum, hyggst kalla eftir því í stefnuskrá sinni fyrir forsetakosningarnar í haust að stofnuð verði nefnd til að skoða tengingu Bandaríkjadals við gullfót. Dalurinn var skiptanlegur í tiltekið magn gulls til ársins 1971 þótt hann hafi ekki verið á eiginlegum gullfæti síðan á 19. öld. Ekkert ríki í heiminum tengir gjaldmiðill sinn gulli í dag en gullfótur er almennt talinn skaðlegur fyrir hagvöxt og stöðugleika. Í drögum að stefnuskrá Repúblikanaflokksins, sem verður samþykkt á landsfundi flokksins sem hófst á mánudag, er einnig kallað eftir því að þingið hafi eftirlit með peningamálastefnu bandaríska Seðlabankans. Síðustu áratugi hefur seðlabankinn verið sjálfstæður frá afskiptum stjórnmálamanna þótt forseti Bandaríkjanna skipi yfirmenn bankans sem þingið þarf jafnframt að samþykkja.- mþl
Fréttir Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira