Íslenskur snekkjusmiður enn í varðhaldi 29. ágúst 2012 08:00 abu dhabi Þvert á fréttaflutning síðustu daga situr Íslendingurinn enn í varðhaldi.
Rúmlega fertugur íslenskur karlmaður situr í varðhaldi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en honum er gert að sök að hafa falsað skjal í málaferlum sem hann höfðaði í landinu. Hann neitaði sök fyrir rétti í Dubai á mánudag. Utanríkisráðuneytið hefur haft mál mannsins á sínu borði um nokkurra vikna skeið, en getur litlar upplýsingar gefið að svo stöddu. Samkvæmt fréttaflutningi þarlendra miðla, helst dagblaðsins The National í Abu Dhabi, hafði Íslendingurinn leitað að fjárfestum til að stofna fyrirtæki um smíði á snekkjum. Komst hann í samband við fjársterkan aðila sem hafði áhuga á að fjárfesta í fyrirtæki hans, en bað fyrst um að smíðuð yrði fyrir sig snekkja. Íslendingurinn gekk að þeim skilmálum með því fororði að fjárfesting í fyrirtækinu kæmi til á móti. Snekkjunni var skilað til væntanlegs fjárfestis en hann stóð ekki við sinn hluta samkomulagsins. Snekkjan mun hafa kostað um 130 milljónir íslenskra króna. Íslendingurinn höfðaði mál árið 2010, sem hann vann, en var síðar ákærður fyrir að hafa falsað skjal sem hann lagði fram í málinu upphaflega. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er maðurinn enn í haldi en unnið er að lausn hans, sem líklega næst í gegn á allra næstu dögum. Þinghaldi hefur verið frestað til 29. september næstkomandi; manninum hefur verið gert að láta af hendi vegabréf sitt og greiða 1,6 milljónir króna í tryggingu til að vera sleppt úr varðhaldi.- shá
Fréttir Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Klukkan tifar og enn langt í land Erlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Fleiri fréttir „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Sjá meira