Búa sig undir ólíkar niðurstöður í Icesave 18. október 2012 07:00 Össur segir ómetanlegt að njóta ráðgjafar Tims Ward í undirbúningi vegna niðurstöðu dómsins.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að dómur í Icesave-málinu gæti fallið fyrir jól, hugsanlega í byrjun desember. Hann fundaði með Tim Ward, aðalmálflutningsmanni Íslands, í gær. Össur segir að í undirbúningi séu viðbrögð við mismunandi útkomum dómsins og brugðið geti til beggja átta. „Ég tel þó að málflutningurinn í sumar hafi sýnt að við höfum ansi þétt rök varðandi það hvort ríkið beri ábyrgð á greiðslum innstæðutryggingarsjóðsins, og raunar á hið sama við varðandi þann þátt sem snýr að meintri mismunun Íslendinga gagnvart innstæðueigendum í Hollandi og Bretlandi. Málflutningsteymið okkar hefur staðið sig ákaflega vel og svo mun niðurstaðan koma í ljós. Við búum okkur undir hvað sem er.“ Össur undrast að mótaðilar hafi viljað láta reyna á ábyrgð ríkisins á tryggingum sjóðsins, en það gæti haft hrikalegar afleiðingar fyrir bankakerfi í löndum þar sem það stendur illa, á hvorn veginn sem dómurinn fellur. „Ef við vinnum þá liggur fyrir að ríki ber ekki ábyrgð á lágmarksgreiðslum til innstæðueigenda, og það gæti haft ófyrirséðar afleiðingar í löndum þar sem staða bankanna er erfið. Ef við töpum þá gæti það sömuleiðis haft afleiðingar fyrir áhættu ríkja þar sem bankakerfið er í vanda, og haft bein áhrif á lánshæfismat þeirra. Þetta mál gæti því komið eins og búmerang aftan að mótaðilum Íslands.“- kóp
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira