Einhliða upptaka ekki talinn valkostur 18. október 2012 07:00 Hópurinn telur að byggja verði á sjálfstæðri peningamálastefnu á grundvelli krónunnar á næstu árum þar sem ekki sé hægt að gera ráð fyrir upptöku annarrar myntar á næstu árum Fréttablaðið/pjetur
Ekki er hægt að gera ráð fyrir upptöku annarrar myntar á næstu árum og því er mikilvægt að tryggja trausta peningastefnu á grundvelli krónunnar. Þetta er sameiginlegt mat samráðshóps allra þingflokka um mótun gengis- og peningamálastefnu sem kemur fram í nýbirtu bréfi til Steingríms J. Sigfússonar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Hópurinn var skipaður í mars síðastliðnum en hann hefur haft til skoðunar möguleika þjóðarinnar varðandi gengis- og peningastefnu til framtíðar. Í hópnum eiga sæti Árni Þór Sigurðsson, tilnefndur af Vinstri grænum, Freyr Hermannsson, tilnefndur af Framsóknarflokknum, Illugi Gunnarsson, tilnefndur af Sjálfstæðisflokknum, Lilja Mósesdóttir, tilnefnd af Hreyfingunni og Þórunn Sveinbjarnardóttir, tilnefnd af Samfylkingunni, auk þeirra Gylfa Arnbjörnssonar frá ASÍ, Vilhjálms Egilssonar frá SA og Helgu Jónsdóttur sem falin var formennska í hópnum. Eins og áður sagði er að mati hópsins ekki hægt að gera ráð fyrir upptöku annarrar myntar á næstu árum og er samstaða innan hans um að einhliða upptaka annarrar myntar komi ekki til álita. Hópurinn telur þess vegna mikilvægt að tryggja trausta peningastefnu á grundvelli krónunnar á næstu árum sem styrkja megi með þjóðhagsvarúðartækjum, ábyrgð í opinberum fjármálum og góðri hagstjórn. Ekki er hins vegar samhljómur í hópnum um valkosti þjóðarinnar í gjaldmiðilsmálum til lengri tíma. - mþl
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira