Innlent

Vilja gamla trillu á leikskólann

BBI skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Mynd/Getty
Landssamband smábátaeigenda fékk skemmtilega fyrirspurn á dögunum þegar starfsfólk á leikskólanum á Sæborg í Reykjavík óskaði eftir lítilli, gamalli trillu til að setja á leikskólalóðina.

„Við höfum mikið verið að vinna með sjóinn (og fjöruna sérstaklega). Nú erum við að fara að taka lóðina okkar í gegn bráðlega og okkur langar mikið að finna gamla, litla trillu til að setja á lóðina svo að börnin geti leikið sér í henni," sagði starfsmaðurinn og bætti við að illa hefði gengið að finna slíkan trébát þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Landssamband smábátaeigenda kom óskinni á framfæri og vonast til þess að einhver geti lagt málinu lið. Ef einhver lumar á gamalli trillu sem hann má sjá af getur sá hinn sami haft samband við skrifstofu Landssambands smábátaeigenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×