Segist líða eins og hann sé í ruslflokki Erla Hlynsdóttir skrifar 25. október 2012 20:30
Tveggja barna faðir með ódæmigerða einhverfu hefur áhyggjur af stöðu sinni eftir að dómari úrskurðaði einhverfa móður forsjárlausa. Hann segir að sér finnist hann hafa verið settur í ruslflokk. Við sögðum frá því í gær að dómari úrskurðaði barnsföður Láru Kristínar Brynjólfsdóttur fulla forsjá yfir sjö ára syni þeirra. Hún var fyrst í fyrra greind með einhverfu. Þar á undan var hún nauðungarvistuð á geðdeild, ranglega greind með geðklofa og aðra sjúkdóma, en fyrir dóminn kom framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans og sagði að Lára hefði fengið nýja greiningu sem væri einhverfa. Sú greining standi á fastari fótum en aðrar greiningar. Einhverfa væri fötlun en ekki sjúkdómur „Ég á fjórtán ára strák og níu ára stelpu. Ég get ekki séð að ég hafi skaðað þau á einn eða neitt hátt. Ég skil ekki þessa niðurstöðu . Ég fékk mikið mikið sjokk. Við flestöll í einhverfusamfélaginu erum meðvitum um það sem er að gerast fyrir Láru. Mér finnst eins og við höfum verið sett í samfélagslegan og þjóðfélagslegan og réttarfarslegan ruslflokk með þessari niðurstöðu - og það er vond tilfinning," segir Hreiðar Þór Ørsted. Lögheimili sonar Láru var fært til föður hans þegar hún var ranglega vistuð á geðdeild. Í rökstuðningi dómarans segir að föður sé dæmd forsjá: sérstaklega vegna þess að drengurinn hafi nú dvalið hjá honum samfleytt í tæp tvö ár og ekki hefur annað komið fram en að honum farnist vel, þykir óvarlegt að rjúfa þessi tengsl. Í fréttum okkar í gær sagði einhverfuráðgjafi Láru að hún hefði fengið og ætti rétt á aðstoð við umönnun sonar hennar vegna fötlunar sinnar. Dómari rökstyður mál sitt hins vegar þannig að samkvæmt matsgerð dómkvadds matsmanns og gögnum málsins að öðru leyti sé Lára ekki í stakk búin til að fara með forsjá sonar síns án utanaðkomandi aðstoðar.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Fleiri fréttir Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Sjá meira