Leikmenn HK mættu gríðarlega vel stemmdir til leiks. Þeir spiluðu frábæra vörn með Björn Inga í fantastuði þar fyrir aftan.
Í sókninni tættu þeir vörn FH-inga í sig og eftir 9 mínútna leik voru þeir komnir með 1-6 forskot. Þá var þjálfurum FH nóg boðið og þeir tóku leikhlé.
FH endurskipulagði sinn leik og smám saman komu þeir sér inn í leikinn. Þegar flautað var til hálfleiks munaði ekki nema þrem mörkum á liðunum, 10-13.
HK byrjaði síðari hálfleik af sama trukki og þann fyrri og var fljótt komið aftur með sex marka forskot, 11-17.
Þegar Pálmar Pétursson kom í markið og varði nokkra bolta náði FH að vinna sig aftur inn í leikinn. Þó ekki lengi því HK steig á bensínið fljótt aftur og leiddi með fimm mörkum, 16-21, þegar tíu mínútur voru eftir.
Þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum náði FH að minnka muninn í þrjú mörk, 19-22, og vonarglæta fyrir FH. Áhorfendur tóku við sér og allt vitlaust á pöllunum.
Björn Ingi lokaði þá markinu hjá HK og sá til þess að sínir menn innbyrtu sigur. Tandri og Ólafur Bjarki sterkir fyrir utan og varnarleikurinn til mikillar fyrirmyndar. Hausinn var rétt stilltur á HK í þessum leik. Þeir voru tilbúnir að deyja fyrir sigurinn á meðan FH-ingar voru allt of ragir lengi vel.
Mikið munaði um það hjá FH að Ólafur Gústafsson var heillum horfinn í leiknum og FH á hann inni í næsta leik. Hann má ekki bjóða upp á slíkan leik næst. Örn Ingi og Hjalti allt í öllu í þessu FH-liði og Ragnar átti fína spretti.
Tandri: Hrikalega gott sjálfstraust í liðinu

"Við byrjuðum hrikalega vel og keyrum hratt allan leikinn. Það skilaði sér. Við lögðum upp með að taka frumkvæði í vörninni og það gekk vel. Þá gátum við keyrt hraðaupphlaup og það er alltaf rosalega gott að fá ódýr mörk," sagði Tandri kátur.
"Það er hrikalega gott sjálfstraust í liðinu og allir tilbúnir að leggja sig 100 prósent fram. Við ætlum að gera allt sem við getum til þess að fá bikarinn í Kópavog.
"Það hjálpar okkur líka að það býst enginn við því að við munum vinna þetta og því engin pressa á okkur þannig séð. Við erum algjörlega klárir og gott að vera komnir með heimavallarréttinn.
"Stuðningsmennirnir voru frábærir og okkar áttundi maður í dag. Við sækjum stemningu og orku frá þeim. Það var snilld að spila fyrir þetta fólk í dag og þeir ætla að fylla Höllina sem sumir kalla Kolaportið reyndar. Það verður rosaleg stemning í næsta leik."
Pálmar: Vorum eins og aumingjar

"HK er allt of gott lið til þess að við getum keyrt yfir þá. Þessi byrjun fór alveg með okkur og bilið var of stórt til að brúa.
"Sóknarleikurinn var líka skelfilegur og svo var Bjössi frábær í markinu hjá þeim. Hann vann markmannseinvígið í dag og það skildi á milli. Hann kláraði þetta undir lokin og var flottur allan leikinn.
"Það getur verið dýrt að tapa heimavallarréttinum. Við unnum hann í fyrsta leik í fyrra og þekkjum það. Við verðum að gjöra svo vel en að girða okkur í brók og sýna smá pung í næsta leik. HK var betra í dag og við verðum að vera betri næst."