Hvalur strandar "vitlausu megin“ við veg BBI skrifar 15. desember 2012 16:53 Hvalurinn liggur í læknum. Mynd/Björg Björgvinsdóttir
Ung stúlka frá Grundarfirði ók í dag ásamt föður sínum fram á fremur óvenjulega sjón. Þau voru á leið frá Rifi til Ólafsvíkur og vegurinn lá meðfram sjónum. Á miðri leið blasti við þeim heljarinnar háhyrningur sem lá dauður í lækjarfarvegi við veginn - og hann lá „vitlausu megin við veginn". Á þessum tiltekna stað liggur mjótt rör undir veginn þar sem vatnslítil á seytlar í gegn og út í sjó. Hvalurinn virðist hafa synt upp ána á flóði, upp að rörinu og þröngvað sér þar í gegn. Þar hefur hann svo strandað þar sem hann hefur ekki ratað aftur í gegn. „Þetta var frekar lítið rör, bara rétt nógu stórt fyrir hann til að troðast í gegn," segir Björg Björgvinsdóttir, 15 ára stúlka frá Grundarfirði, sem ók fram á hvalinn ásamt föður sínum. „En þetta er eina leiðin sem hann hefur mögulega getað farið, nema hann hafi stokkið eins og í Free Willy yfir veginn." Feðginin sáu hvalinn í dag og þykjast nokkuð viss um að um háhyrning sé að ræða, en af myndunum að dæma er það langlíklegast. Þau vita ekki hve langt er síðan hvalurinn endaði þarna. „Nei, við héldum okkur bara í góðri fjarlægð til öryggis," segir Björg.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira