Tíska og hönnun

Sumarhús Ottós lýtalæknis vekur athygli

Myndir/Architizer.com
Lýtalæknirinn Ottó Guðjónsson og fjölskylda hans eiga þetta glæsilega sumarhús sem skoða má á myndunum. Sumarhúsið, er til umfjöllunar á arkitektarsíðunni Architizer.com og fær góða dóma fyrir hlýleika, einfaldleika og ekki síður umhverfisvæna hönnun. Arkitektarnir og hjónin Tryggvi Þorsteinsson og Erla Dögg Ingjaldsdóttir sem reka saman arkitektastofuna Minarc hönnuðu sumarhúsið en þau eru búsett í Los Angeles.
Einfalt og hlýlegt.
Sumarhús Ottós vekur athygli á erlendri grund.
BIrtan nýtur sín í aðalrýminu - stofunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×