Innlent

Líkamsárás við þýska barinn

Lögreglan fékk tilkynningu um líkamsárás við Þýska barinn í nótt. Þar var dyravörður sleginn í andlitið en atvikið er flokkað sem minniháttar atvik af hálfu lögreglu. Árásarmaðurinn var látinn laus eftir að lögreglan hafði rætt við hann.

Að öðru leytinu var vakt lögreglunnar með rólegra móti, einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur og annar ökumaður tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×