Ungir sænskir karlmenn stunda mun meira vændi en stúlkurnar 15. nóvember 2012 06:42
Töluverð umræða hefur sprottið upp í Svíþjóð eftir að rannsókn sýndi að ungir sænskir karlmenn stunda mun meira vændi en stúlkur á sama aldri. Rannsókn þessi var unnin á vegum hins opinbera í Svíþjóð og hún sýndi að 2,1% karlmanna á aldrinum 16 til 25 ára höfðu stundað vændi. Hlutfallið hjá stúlkunum á sama aldursbili var hinsvegar aðeins 0,8%. Hér er um að ræða að veita kynlífsgreiða og fá hann borgaðan í einu eða öðru formi, oft áfengi á bar eða nýtt símakort auk reiðufjár. Marie Nyman sem stjórnaði rannsókninni segir að hinir ungu karlar selji sig bæði til karla og kvenna en stúlkurnar að nær öllu leyti til karla. Hún segist hinsvegar ekki hafa neina skýringu á þeim mikla mun sem er á körlum og konum á þessu aldursskeiði þegar kemur að vændi. Það sem ekki hefur síður vakið athygli í Svíþjóð er að 21,5% ungra Svía í fyrrgreindum aldurshóp segir að þeir sjái ekkert athugavert við að stunda vændi. Kaup á vændi eru bönnuð í Svíþjóð eins og á Íslandi og í Noregi og raunar eru allar líkur á að svipuð lög verði samþykkt í Danmörku á þessum vetri.
Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira