Innlent

Fréttir á Gull Bylgjunni

Fréttir frá fréttastofu Bylgjunnar, Vísis og Stöðvar 2 hljóma nú einnig á Gull Bylgjunni.

Gull Bylgjan á marga dygga hlustendur sem njóta þess að hlusta á „þessi gömlu góðu" sem hljóma þar allan sólarhringinn. Nú hefur þjónusta við hlustendur stöðvarinnar verið stórbætt því þar hljóma nú fréttir frá klukkan sjö á morgnanna til klukkan fimm síðdegis.

Gull Bylgjan samtengist Bylgjunni á heila tímanum og hlustendur þurfa því ekki að skipta um stöð til að fylgjast með fréttum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×