Savile sagður hafa beitt sjúklinga kynferðisofbeldi Hugrún Halldórsdóttir skrifar 13. október 2012 12:50 Stutt er síðan að breska lögreglan gaf það út að Savile, sem lést í fyrra, hafi beitt unglingsstúlkur kynferðislegu ofbeldi allt frá árinu 1959.
Breski sjónvarpsmaðurinn Jimmy Savile er talinn hafa beitt sjúklinga á Broadmoor geðsjúkrahúsinu í Berkshire kynferðislegu ofbeldi en þar vann hann sem sjálfboðaliði í um áratug. Stutt er síðan að breska lögreglan gaf það út að Savile, sem lést í fyrra, hafi beitt unglingsstúlkur kynferðislegu ofbeldi allt frá árinu 1959. Hann hefur þegar verið sakaður um tólf kynferðisbrot en mál fjörutíu stúlkna og kvenna sem hann kann að hafa brotið gegn eru nú í rannsókn og telur lögregla að fleiri fórnarlömb eigi eftir að stíga fram. Savile starfaði lengi vel hjá breska ríkissjónvarpinu BBC þar sem hann komst í kynni við mörg fórnarlömb sín sem hafa nú tekið höndum saman og ákveðið að kæra fjölmiðilinn. Savile var ekki eingöngu frægur fyrir störf sín í útvarpi og sjónvarpi því hann lagði kapp á mannúðarstörf og starfaði við ýmis sjálfboðaliðastörf, þar á meðal á Broadmoor geðsjúkrahúsinu í Berkshire á árunum 1970 til 1980. Á þeim tíma var hann ásakaður um að hafa beitt sjúklinga kynferðisofbeldi en var aldrei gert að víkja frá störfum. Þess í stað var hann kjörinn til að leiða hóp sem sá um endurskipulagningu á rekstri stofnunarinnar. Breska heilbrigðisráðuneytið hefur nú hafið rannsókn á störfum Savile á sjúkrahúsinu og á því af hverju hann fékk að starfa áfram og í jafn háttsettri stöðu og raun ver vitni þrátt fyrir mjög alvarlegar ásakanir.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira