Nýjasta myndband Lay Low frumsýnt á Vísi 16. október 2012 10:49
Tónlistarkonan Lay Low sendir frá sér nýtt myndband við lagið The Backbone um leið og hún sendir frá sér tveggja laga vínyl plötu í takmörkuðu og númeruðu upplagi. Lögin tvö eru The Backbone og Rearrangement. Það fyrra er nýtt frumsamið lag en það síðarnefnda er ensk útgáfa af laginu Gleym mér ei sem kom út á breiðskífu Lay Low, Brostinn strengur, sem hún sendi frá sér árið 2011. Niðurhalskóði fylgir vínylnum þannig að fólk getur náð í lögin löglega á netinu. Myndbandið gerði kvikmyndagerðarkonan Halla Kristín Einarsdóttir en hún vakti athygli fyrir heimildarmynd sína Konur á rauðum sokkum og vann meðal annars Skjalborgarverðlaunin og Nordic Polar verðlaunin fyrir hana. „Við vorum báðar á tónlistarhátíðinni á Rauðasandi í sumar og Halla stakk upp á þessu. Hún sá þetta fyrir sér enda með gott auga. Við unnum bara með það sem var í umhverfinu, sandinn og sjóræningjahúsið sem myndaði andstæður og stemmingu og hentaði laginu," segir Lay Low um tilurð myndbandsins. Lay Low segir að kveikjan af laginu hafa verið límmiði sem var búinn að hanga lengi upp á vegg á vinnustofunni hjá henni. Á honum stóð "have a nice forever" undir mynd af brosandi tungli. Það má því segja að límmiðinn hafi orðið af lagi. „Þessi setning var búin að brosa við mér svo lengi og átti skilið að komast í lag hjá mér. Þetta var bara hugdetta sem gerðist um leið og ég var að glamra fram nýja laglínu á gítarinn minn," segir Lay Low í tilkynningu. Lay Low hefur undanfarið verið á löngum tónleikaferðalögum með Of Monsters and Men um heiminn og á eigin vegum en er nú nýflutt í sveitina rétt fyrir utan Hvergerði og einbeitir þar að því að klára nýja breiðskífu. „Ég vildi breyta um umhverfi og komast í kyrrðina. Ég er með stórt hús þar sem ég get verið með hljóðverið mitt og æfingaraðstöðu sem hentar mér vel í þeim pælingum sem ég er í núna. Ég er að vinna með hljóðheiminn sem þróaðist á Brostnum streng og ætla að pæla meira í þá veru í þessu nýja efni sem er að fæðast." Lay Low kemur fram á Iceland Airwaves þar sem hún spilar í Fríkirkjunni föstudaginn 2. nóvember.
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Sjá meira