Feður taka síður fæðingarorlof nú en áður Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. október 2012 14:37
Feðrum, sem fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, fækkaði um 5,3% milli áranna 2009 og 2010. Milli áranna 2010 og 2011 fækkaði þeim um 10,2%. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra við fyrirspurn Lúðvíks Geirssonar um málið. Í svarinu er þó tekið skýrt fram að það sé miðað við greiðsluár þannig að upplýsingarnar geti átt við um foreldra barna sem eru fædd, ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur á rúmlega þriggja ára tímabili í ljósi þess tíma sem foreldrum er heimilt að nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs. Í svarinu kemur jafnframt fram að tölur frá Fæðingarorlofssjóði sýni að það hafi orðið fækkun á meðalfjölda þeirra daga sem feður eru í fæðingarorlofi. Þannig lækkaði meðalfjöldi fæðingarorlofsdaga feðra úr 102 dögum árið 2008 niður í 99 daga árið 2009. Lækkunin hélt áfram árið 2010 en þá var meðalfjöldi daga, sem feður fengu greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði, 90 dagar og lækkaði í 82 daga árið 2011. Ráðherra segir í svarinu að ljóst sé að ýmsir þættir, aðrir en lægri hámarksgreiðslur úr sjóðnum, kunni að hafa haft áhrif á þá fækkun sem hefur orðið á töku fæðingarorlofs hjá feðrum síðustu fjögur árin. „Ætla má að hinar miklu breytingar sem hafa orðið í íslensku samfélagi frá haustmánuðum árið 2008, ekki síst á innlendum vinnumarkaði, hafi haft áhrif á fæðingarorlofstöku feðra. Má í því sambandi nefna lækkun kaupmáttar, óöryggi á vinnumarkaði og auknar skuldir heimilanna. Er því mikilvægt að skoða nánar hvort fjárhæð tekna foreldra hafi áhrif á fæðingarorlofstöku þeirra þar sem ljóst er að lækkun á hámarksfjárhæð á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði hefur eingöngu áhrif á tekjuhærri hópa," segir í svarinu.
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Sjá meira