Vill að þingforseti upphefji virðingu Alþingis Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 16. október 2012 21:00
Björn Valur Gíslason þingflokksformaður og formaður fjárlaganefndar vill að þingforseti víki Sveini Arasyni Ríkisendurskoðanda embætti, að minnsta kosti tímabundið. Í bréfi sem Ríkisendurskoðandi sendi forseta Alþingis á dögunum ásamt útskýringum á því hvers vegna skýrsla um bókhaldskerfi ríkisins hafi verið átta ár í vinnslu, segist hann hugsi yfir þætti Björns Vals í málinu. Sveinn segir að Birni hafi verið kunnugt um skýrsludrögin þegar árið 2009 en hafi aldrei látið svo lítið að spyrjast fyrir um þau, fyrr en Sveinn hafi verið boðaður á fund fjárlaganefndar daginn eftir að Kastljósið fjallaði um skýrsludrögin. „Ég var í fyrsta lagi undrandi á að ríkisendurskoðandi skildi grípa til þessa ráðs, að nánast væna mig um þjófnað á gögnum úr stofnuninni og að það hafi dregist um átta ár að skila þessari skýrslu. Það hefur hann ekki gert." Björn Valur segir að með því að draga vinnu skýrslunnar á langinn hafi Ríkisendurskoðandi leynt Alþingi og nefndum þess mikilvægum gögnum. „Ríkisendurskoðandi var í lófa lagið að upplýsa okkur um þetta í mörg mörg ár en gerði ekki. Það er ekki enn komið svar við þessu." Björn Valur segir að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti þingsins hafi ákveðið að bregðast ekki við þeim trúnaðarbresti sem nú ríkir á milli þingmanna og Ríkisendurskoðanda. „Kannski vonast hún til þess að það fenni yfir þetta eins og mörg önnur mál en henni mun skjöplast í því og það mun ekki verða gert." Valgerður Bjarnadóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sagði í dag að réttast væri að Ríkisendurskoðandi víki tímabundið frá störfum. Björn Valur tekur undir það: „Ég held það yrði öllum holt að stjórnandi stígi til hliðar tímabundið í það minnsta."
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira