Óttast að landsbyggðin fái ekki nauðsynlegar uppbætur Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 17. október 2012 12:38
Prófessor í stjórnmálafræði óttast að landsbyggðin fái ekki nauðsynlegar uppbætur ef atkvæðavægi verður jafnað í landinu líkt og Stjórnlagaráð leggur til í frumvarpi að nýrri og endurskoðaðri stjórnarskrá. Atkvæði kjósenda í dreifbýli hafa haft meira vægi í kosningum til Alþingis á Íslandi en þeirra sem búsettir eru í þéttbýliskjördæmum. Þjóðin fær á laugardag tækifæri til að segja sína skoðun á þessu kosningaskipulagi, það er hvort að hún vilji að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir stjórnlagaráð taka fram að aðstöðumunur sé á milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar og að í kafla um sveitarfélög felist nauðsynlegar uppbætur til landsbyggðarinnar sem fást fyrir að missa atkvæðavægi. „Ég á mjög erfitt með að sjá að það geti falist sérstaklega tryggar eða miklar uppbætur í því að sveitarfélög fái mögulega einhver aukin verkefni, mögulega eitthvað aukið sjálfstæði, sem stjórnlagaráð tekur sérstaklega fram að skuli vera þá í lögum. Með öðrum orðum er verið að leggja til að þetta jafnvægi verði bundið í stjórnarskrá en uppbæturnar sem eru viðurkennar verði hins vegar festar í lögum sem eru mjög auðbreytanleg eins og við vitum," segir Grétar Þór. Grétar Þór segist halda að ákvæðið verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn af meirihluta þjóðarinnar. „Ég er hins vegar að benda á að þetta mál er flóknara en það virðist vera," segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði, sem fjallar ítarlega um málið í erindi sínu á félagsvísindatorgi í Háskólanum á Akureyri nú í hádeginu.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira