Innlent

Öll börn þurfa ókeypis heilbrigðisþjónustu

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Vilborg Oddsdóttir.
Vilborg Oddsdóttir.
Börn og ungmenni eiga ekki að líða fyrir fátækt. Því er mikilvægt að bjóða öllum íslenskum börnum upp á fría heilbrigðisþjónustu til að jafna stöðu þeirra. Þetta segir félagsráðgjafi sem tók þátt í að vinna nýja skýrslu um málefni fátækra.

Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði krossinn í Reykjavík kynntu í morgun skýrsluna en unnið hefur verið að henni í tæpt ár. Ákveðið var að kynna hana í dag á alþjóðlegum baráttudegi gegn fáttækt. Í henni er bent á nokkrar fátæktrargildrur sem eru í samfélaginu og hvernig hægt sé að bregast við þeim. Þannig er til að mynda lagt til að öll heilbrigðisþjónusta fyrir börn verði verði endurgjaldslaus. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi er ein þeirra sem vann skýrsluna. Hún segir að til að mynda sé talþjálfun ekki endurgreidd og sömuleiðis þurfi foreldrar að greiða stóran hluta tannlækninga barna sinna. Þetta hafi áhrif á stöðu barnanna.

„Ef þú færð ekki talþjálfun þá kemur þú náttúrulega með aðeins minni möguleika inn í skólann. Ef að tannheilsan þín er ekki góð þá er náttúrulega tannpínan og missir tennur sem að náttúrulega félagslega er alls ekki gott. Þannig að þú ert nú þegar þá kannski kominn í eitthvað annað sæti. Það er alls ekki það sem við viljum fyrir þennan hóp. Við viljum bara jafna stöðu þessara barna þannig að það er engin mismunun í gangi í íslensku samfélagi gagnvart börnum," sagði Vilborg Oddsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×