Innlent

Reglugerð um lækkun sérstaks veiðigjalds

BBI skrifar
Mynd/GVA
Gefin hefur verið út reglugerð um tímabundna lækkun sérstaks veiðigjalds. Í reglugerðinni eru útfærð skilyrði sem aðilar þurfa að uppfylla svo þeir hafi rétt til að greiða lægra veiðigjald á þessu fiskveiðiári vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum til ársloka 2011.

Í ákvæði II til bráðabirgða við lög um veiðigjöld kemur fram að næstu sex ár geti aðilar átt rétt á að greiða lægra veiðigjald vegna vaxtakostnaðar við kaup á aflahlutdeildum til ársloka 2011. Hins vegar átti eftir að útfæra nákvæmlega hvernig staðið yrði að þeirri lækkun. Sökum þess að slíkar reglur lágu ekki fyrir í haust þegar stóð til að leggja veiðigjöldin á útgerðir var eindaga veiðigjaldsins frestað til 3. desember.

Nú hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið gefið út téða reglugerð. Þeir sem telja sig eiga rétt á að greiða lægri veiðigjöld geta sótt um það samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar fyrir 1. nóvember.

Hér má nálgast reglugerðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×