Innlent

Hætta við að hljóðrita ríkisstjórnarfundi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Valgerður Bjarnadóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Valgerður Bjarnadóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Ríkisstjórnarfundir verða ekki hljóðritaðir, en kröfur um ritun funda verða skýrari, samkvæmt nýju frumvarpi sem meirihluti stjórnskipunar og eftirlitsnefndar hefur lagt fram. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, mælti fyrir frumvarpinu í dag.

Samkvæmt nýlegum lögum um Stjórnarráð Íslands stóð til að hefja hljóðritanir á ríkisstjórnarfundum 1. nóvember næstkomandi. Samkvæmt lögunum átti að gera hljóðritanir þessar opinberar að 30 árum liðnum frá ríkisstjórnarfundi. Vegna athugasemda frá Róbert Spanó, forseta lagadeildar Háskóla Íslands, og Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við HÍ, var ákveðið að falla frá þessu.

Í stað ákvæðis um hljóðritun er í nýju frumvarpi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar lagt til að öllum málum sem ráðherrar beri upp í ríkisstjórn skuli fylgja sérstakt minnisblað ráðherra til ríkisstjórnar þar sem meginatriði máls eru rakin og helstu sjónarmið sem að baki liggja. Sé óskað eftir samþykki ríkisstjórnar beri ráðherra að setja þar fram skýrt orðaða tillögu. Forsætisráðherra getir aftur á móti vikið frá skyldu til að leggja mál fram skriflega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×