Innlent

Lottóvinningshafinn ekki stigið fram

Stefán Konráðsson hjá Íslenskri getspá.
Stefán Konráðsson hjá Íslenskri getspá.
Íslendingurinn stálheppni sem vann rúmar hundrað og þrjár milljónir króna í Víkingalottói í gær hefur ekki gefið sig fram en vinningsmiðann keypti hann hjá N1 í Stórahjalla í Kópavogi.

Íslendingurinn hreppti fyrsta vinninginn ásamt Norðmanni og Finna en að sögn Stefáns Konráðssonar, framkvæmdastjóra Íslenskrar Getspár hefur hann ekki gefið sig fram og það er kannski ekki skrýtið enda stutt liðið frá útdrætti.

„Miðinn var keyptur í Stórahjalla í Kópavogi á N1 og við erum bara spennt og hvetjum fólk til að skoða miðana sína og láta okkur vita. Okkur sýnist að þetta sé 10 raða sjálfvalsseðill," segir Stefán.

Þetta er í tuttugasta og fyrsta skipti sem Íslendingur hlýtur fyrsta vinninginn í Víkingalottóinu en sá sem rataði til Íslands í gær er sá næststærsti til þessa.

Í mars á þessu ári þá fengum við vinningshafa sem avr með 107 milljónir og hann var frá Akureyri þannig að við erum búin að vera heppin í Lottóinu sem betur fer," bætir hann við.

Vinningshafa gærdagsins verður svo boðið upp á ráðgjöf hjá Íslenskri Getspá þegar hann gefur sig fram líkt og venjar er þegar um er að ræða stóra vinninga.

„Við leggjum mikla áherslu á það að fólk sé að fá góða ráðgjöf um hvernig það eigi að nýta peninginn og bara koma fólki niður á jörðina," segir Stefán.

„Þetta er náttúrulega mikið gleðiefni þegar fólk vinnur mikla vinninga en það þarf líka að halda jarðtengingunni og vita hvert maður ætlar," segir hann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×