Buffon segir að þjálfari sinn óttist ekkert Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2012 23:00 Gianluigi Buffon. Mynd/AFP
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus og ítalska landsliðsins, ætlar að standa með þjálfara sínum Antonio Conte þrátt fyrir að Conte hafi verið dæmdur í tíu mánaða bann af ítalska knattspyrnusambandinu. Conte var fundinn sekur um að hafa ekki tilkynnt grunsemdir um hagræðingu úrslita leikja með Siena í b-deildinni tímabilið 2010-2011. Conte hefur þó ávallt haldið fram sakleysi sínu og ætlar að gera það áfram. Antonio Conte gerði Juventus að ítölskum meisturum á sínum fyrsta ári með liðið og það er ljóst að hans verður sárt saknað á þessu tímabili. Juventus-menn geta þó glaðst yfir því að leikmennirnir Leonardo Bonucci og Simone Pepe voru sýknaðir. „Ég er ánægður því bæði Simone og Leonardo eru góðir vinir mínir. Ég vil hrósa þeim fyrir að standast svona pressu af miklu hugrekki. Ég og stjórinn eigum gott samband enda liðsfélagar í gamla daga. Ég trúi því að baráttuandinn sé í hans DNA og hann óttast ekkert," sagði Gianluigi Buffon. Gianluigi Buffon og félagar spila fyrsta leikinn án Antonio Conte í Peking á morgun þegar liðið mætir bikarmeisturum Napoli í árlegum leik í Meistarakeppninni. Liðið verður einnig án aðstoðarþjálfarans Angelo Alessio sem var dæmdur í átta mánaða bann enda líka aðstoðarmaður Conte hjá Siena.
Ítalski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira