„Þetta skiptir alltaf miklu máli að fá fjármagn inn í þetta til þess að láta draumin rætast," sagði Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG í dag þegar greint var frá stofnun afrekssjóðsins Forskot. Auk GSÍ eru stofnendur sjóðsins Eimskip, Valitor, Íslandsbanki og Icelandair Group en 15 milljónir verða veittar til fimm íslenskra afrekskylfinga árið 2012.
„Í fyrsta sinn á mínum ferli er það orðið möguleiki fyrir mig að keppa á Ólympíuleikum, eftir fjögur ár þá verð ég fertugur og það væri ágætis afmælisgjöf," sagði Birgir Leifur en keppt verður í golfi á sumarleikunum í Brasilíu árið 2016 og verður það í fyrsta sinn frá árinu 1904 sem keppt er í golfi.
Birgir er í hópi fimm íslenskra kylfinga sem fá styrk úr afrekssjóðnum Forskoti. „Þessi styrkur skiptir gríðarlega miklu máli fyrir mig, sem og aðra í afreksíþróttum. Ég stefni á að taka nokkur skref upp stigann," sagði Birgir Leifur m.a. í dag við Vísi.
