Ögmundur hefur ekkert heyrt um samninginn um Grímsstaði Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. maí 2012 18:27 Ögmundur Jónasson er innanríkisráðherra. mynd/ anton.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ekkert heyrt um samning sem gerður verður við kínverska fjárfestinn Huang Nubo og til stendur að ræða á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudag. Samkvæmt samningnum, sem greint var frá í kvöldfréttum RÚV, munu sveitarfélög ræða á Norðurlandi og Austurlandi kaupa landið og leigja Nubo það. Samningurinn verður til fjörutíu ára og mun Nubo greiða fyrir leiguna fyrirfram. Þannig verða kaupin á landinu fjármögnuð. „Ég hef ekkert heyrt um þennan samning og þá verður þetta væntanlega kynnt fyrir mér og öðrum á fundinum," segir Ögmundur sem telur að það verði fróðlegt að fá upplýsingar um þetta mál. „Ég hef verið að bera mig eftir því en það hefur enginn haft frumkvæði að þv´að kynna mér eða innanríkisráðuneytinu eitt eða neitt," segir Ögmundur, en bætir því við að það hafi borist óljósar fréttir í gegnum iðnaðarráðuneytið og í gegnum fjölmiðla að unnið væri að samningum. Þegar Huang Nubo bauðst til þess að kaupa Grímsstaði á Fjöllum í fyrra lá fyrir að hann þyrfti undanþágu sem heimiluðu honum slíkar fjárfestingar því almenna reglan er sú að útlendingar utan EES svæðisins megi ekki kaupa jarðir á Íslandi. Nubo sótti um undanþágu til innanríkisráðuneytisins en þeirri beiðni var hafnað.
Tengdar fréttir Fullyrt að Nubo muni leigja Grímsstaði Hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi munu kaupa 70% hlut í Grímsstöðum á Fjöllum og leigja það kínverska fjárfestinum Huang Nubo til fjörutíu ára. Þetta hefur fréttastofa RÚV eftir heimildarmönnum sínum. RÚV segir að Nubo muni greiða leiguna fyrirfram og þannig verði kaupin fjármögnuð. 2. maí 2012 18:07 Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Sjá meira
Fullyrt að Nubo muni leigja Grímsstaði Hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi munu kaupa 70% hlut í Grímsstöðum á Fjöllum og leigja það kínverska fjárfestinum Huang Nubo til fjörutíu ára. Þetta hefur fréttastofa RÚV eftir heimildarmönnum sínum. RÚV segir að Nubo muni greiða leiguna fyrirfram og þannig verði kaupin fjármögnuð. 2. maí 2012 18:07