Ferðafélagið undirritar samning við Advania 20. mars 2012 16:21 Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands (fyrir miðju) með Gesti G. Gestssyni forstjóra og Davíð Hjaltested ráðgjafa (hægra megin).
Ferðafélag Íslands hefur undirritað samning við Advania um innleiðingu á viðskiptalausninni ÓPUSallt, sem inniheldur einingar fyrir innflutning, dreifingu, framleiðslu, verkbókhald, bókhaldsþjónustu eða handtölvulausnir. Í tilkynningu segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, að ferðafélagið sé með stærstu og öflugustu félagasamtökum í landinu. „Við höfum átt farsælt samstarf við félagið um langt árabil og það er grundvöllurinn að þessari nýju innleiðingu á nútímalegri viðskiptalausn," segir Gestur. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins, segir að það henti Ferðafélagi Íslands afskaplega vel að eiga í langtíma samstarfi við trausta birgja, sem veiti góða og skjóta þjónustu á hagkvæmu verði. „Þannig getum við einbeitt okkur að kjarnastarfsemi félagsins og verið áhyggjulaus um ótengda þætti, líkt og tækniumhverfi okkar," segir Páll. „Vefþjónustukostir ÓPUSallt eru þróaðir með Microsoft.NET-tækni og eru hentugir fyrir hnökralaus rafræn samskipti við til dæmis birgja, viðskiptavini, banka og tollayfirvöld. Ferðafélagið hefur um árabil notað fjárhagskerfið TOK+ og uppfærir nú í ÓPUSallt á hagkvæman og fljótlegan hátt," er haf eftir Davíði Hjaltested hjá Advania. Ferðafélag Íslands var stofnað árið 1927. Félagið er áhugamannafélag með 7 þúsund meðlimi og tilgangur þess er að stuðla að ferðalögum um Ísland og greiða fyrir þeim. Innan vébanda Ferðafélagsins starfa 15 deildir víða um landið. Deildirnar eiga og reka skála og halda úti skipulögðum ferðum fyrir ferðafólk allan ársins hring.
Tækni Mest lesið Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira