Snæfell lagði Njarðvík í spennuleik í Hólminum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. mars 2012 21:15 Hildur Sigurðardóttir skoraði 19 stig og tók fjögur fráköst í sigri Snæfellinga. Mynd / Valli
Snæfellskonur jöfnuðu metin í viðureign sinni gegn Njarðvík í undanúrslitum Iceland Express-deildar kvenna í Hólminum í kvöld. Heimakonur unnu tveggja stiga sigur, 85-83, í miklum spennuleik. Leikurinn í kvöld var jafn frá upphafi til enda. Gestirnir úr Njarðvík leiddu með þremur stigum í leikhléi 43-40 og að loknum þriðja leikhluta var allt í járnum, 59-59. Lokamínútan var æsispennandi. Kireaah Marlow kom heimakonum stigi yfir 79-78 þegar mínúta lifði leiks en Ólöf Helga Pálsdóttir svaraði með sniðskoti á hinum endanum og gestirnir stigi yfir. Þegar 18 sekúndur voru eftir var brotið á Hildi Sigurðardóttur í skoti fyrir utan þriggja stiga línuna. Reynsluboltinn setti tvö skot ofan í og Snæfellingar stigi yfir, 81-80. Shanae Baker-Brice brást bogalistin á hinum endanum og Kierah Marlow skoraði úr báðum vítaskotunum. Jordan Murphree bætti við tveimur stigum af vítalínunni áður en Baker-Brice minnkaði muninn í 85-83 með þriggja stiga skoti í þann mund sem leiktíminn rann út. Liðin hafa nú unnið hvort sinn leikinn og mætast þriðja sinni í Ljónagryfjunni í Njarðvík á þriðjudagskvöld. TölfræðiSnæfell-Njarðvík 85-83 (20-19, 20-24, 19-16, 26-24) Snæfell: Kieraah Marlow 28/6 fráköst, Jordan Lee Murphree 22/9 fráköst/6 stoðsendingar, Hildur Sigurdardottir 19/4 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 9, Hildur Björg Kjartansdóttir 4/6 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3/4 fráköst. Njarðvík: Shanae Baker-Brice 33/4 fráköst, Lele Hardy 14/20 fráköst/5 stolnir, Petrúnella Skúladóttir 14, Salbjörg Sævarsdóttir 10, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 7/6 fráköst, Ína María Einarsdóttir 3, Ólöf Helga Pálsdóttir 2/5 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira