Falur: Þetta hljómar mjög vel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2012 14:00 Keflavíkurstelpurnar skemmtu sér vel í bikarafhendingunni í gær. Mynd/ÓskarÓ
Falur Harðarson, þjálfari Keflavíkur, gerði liðið að deildarmeisturum á sínu fyrsta ári með liðið en Keflavík tók við bikarnum eftir sannfærandi sigur á KR í DHL-höllinni í gær. Falur var aðstoðarþjálfari þegar Keflavík varð Íslandsmeistari í fyrra en þá endaði liði í 2. sæti í deildinni. „Það hljómar mjög vel að vera með heimavallarrétt út alla úrslitakeppnina. Ég er búinn að leggja áherslu á það allan tímann að enda í efsta sæti því það skiptir okkur gríðarlega miklu máli sérstaklega vegna þess hvernig við erum búin að vera að spila. Við erum búin að tapa einum leik á heimavelli í vetur og það var í síðasta leik þegar við spiluðum mjög illa á móti Snæfelli," sagði Falur. „Okkur líður mjög vel á heimavelli og þetta er mjög dýrmætt fyrir okkur að ná þessum deildarmeistaratitli," segir Falur. Keflavík tapaði 3 af síðustu 5 leikjum sínum þar af tveimur þeirra stórt. Þjálfarinn hefur samt ekki áhyggjur. „Ég hef ekki lengur áhyggjur. Stelpurnar eru búnar að vera spila mjög vel á æfingum frá því í síðasta leik og þessi leikur á móti KR var aldrei spurning. KR var með vængbrotið lið en ég var ánægður með hvernig mínar náðu að halda haus allan leikinn," sagði Falur. Framundan er spennandi úrslitakeppni enda hefur verið mikið um óvænt úrslit í leikjum Iceland Express deildar kvenna í vetur. „Úrslitakeppni á að vera erfið og ég hef sagt það áður að þá á enginn þessa bikara. Það er bara það lið sem vill taka þá sem tekur þá. Það eru fjögur sterk lið í úrslitakeppninni í kvennaboltanum í ár. Næsta verkefni er að spila við Hauka og nú er markmiðið að komast í gegnum þær. Við tökum samt bara einn leik fyrir í einu," sagði Falur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira