Brot úr sögu Neytendasamtakanna Jóhannes Gunnarsson skrifar 7. apríl 2012 06:00 Á næsta ári eru liðin 60 ár frá stofnun Neytendasamtakanna en þau eru þriðju elstu neytendasamtök í heiminum. Það var framsýnt fólk sem stóð að stofnun samtakanna á sínum tíma og að öðrum ólöstuðum fór Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur þar fremstur í flokki. Neytendasamtökin hafa í gegnum tíðina haft afskipti af ótal málum sem varða hagsmuni neytenda og er hér tæpt á nokkrum þeirra. Hvile vask-máliðFyrst skal nefnt til sögunnar svokallað Hvile vask-mál sem kom upp á fyrsta starfsári samtakanna. Þvottaefnið Hvile vask var auglýst í útvarpinu á eftirfarandi hátt: „Gerið þvottadaginn að hvíldardegi! Notið Hvile vask.“ Neytendasamtökin létu efnagreina þvottaefnið og var niðurstaðan sú að hér var ekkert undraefni á ferðinni. Þvottaefnið innihélt einfaldlega óvenjumikið bleikiefni þannig að þvotturinn varð eðlilega hvítari. Gallinn var hins vegar sá að slit á þvottinum var meira en eðlilegt gat talist. Samtökin sendu í kjölfarið frá sér fréttatilkynningu þar sem niðurstöðurnar voru kynntar og dróst salan mikið saman í kjölfarið. Innflytjandinn krafðist þess að Neytendasamtökin drægju yfirlýsingu sína til baka ella myndi hann stefna samtökunum. Á þetta féllust samtökin ekki og höfðaði innflytjandinn þá mál. Neytendasamtökin töpuðu málinu í undirrétti en áfrýjuðu málinu til Hæstaréttar. Með mikilli gagnasöfnun, m.a. í nágrannalöndunum, unnu Neytendasamtökin síðan málið fyrir Hæstarétti og hvarf þá þetta þvottaefni fljótlega af markaði. Óætar kartöflurÁ árum áður hafði Grænmetisverslun landbúnaðarins einokun á innflutningi á grænmeti og kartöflum þegar innlend framleiðsla annaði ekki eftirspurn. Oftar en ekki höfðu verið fluttar inn kartöflur sem vart töldust mannamatur. Á vordögum árið 1984 flutti Grænmetisverslunin inn kartöflur frá Finnlandi sem voru sýktar og að mestu leyti óætar. Nú var þolinmæði neytenda á þrotum og mikil óánægja braust út. Neytendasamtökin ákváðu að standa fyrir undirskriftasöfnun meðal neytenda þar sem krafist var að innflutningur á kartöflum og öðru grænmeti yrði gefinn frjáls. Þrátt fyrir að undirskriftalistar lægju aðeins frammi í verslunum í þrjá daga skrifuðu 20 þúsund neytendur undir þessar kröfur. Voru þær afhentar þáverandi landbúnaðarráðherra, Jóni Helgasyni, sem tók þeim fálega. Eftir fund sem forystumenn Neytendasamtakanna áttu með þáverandi forsætisráðherra, Steingrími Hermannssyni, var breytingum lofað. Í framhaldinu var svo einokun á innflutningi lögð af og í kjölfarið var Grænmetisverslun landbúnaðarins lögð niður. Finnsku kartöflurnar urðu þannig banabiti þeirrar einokunar sem ríkt hafði á þessu sviði. Tómötum hent á hauganaMikil umræða var um svipað leyti þegar upp komst að framleiðendur tómata hentu tómötum í stórum stíl á haugana til að halda uppi verði. Neytendasamtökin mótmæltu harðlega og lögðu áherslu á að verð yrði frekar lækkað og þannig hvatt til aukinnar neyslu. Framleiðendur féllust á að reyna þetta og jókst salan mikið í kjölfarið. Það þurfti því ekki lengur að henda tómötunum því neytendur borðuðu þá af bestu lyst. Framleiðendur högnuðust af meiri sölu og neytendur fengu vöruna á lægra verði og því græddu báðir. Samráð olíufélagannaLoks skal hér nefnt til sögunnar nýlegt mál í framhaldi af uppljóstrun samkeppnisyfirvalda á samráði olíufélaganna sem staðið hafði frá árinu 1993 og þar til húsleit var gerð hjá þeim í lok árs 2001. Neytendasamtökin töldu einsýnt að með samráðinu hefðu olíufélögin valdið neytendum tjóni. Því var ákveðið að hvetja þá neytendur sem gátu með kvittunum sýnt fram á viðskipti sín við olíufélögin á því tímabili sem samráðið stóð yfir, að koma með kvittanir á skrifstofu samtakanna. Í framhaldi af því var ákveðið að höfða prófmál fyrir neytanda sem vannst fyrir héraðsdómi og sem staðfestur var af Hæstarétti. Í kjölfar þessa var svo gert samkomulag við olíufélögin um að þau myndu með sama hætti bæta öðrum sem orðið höfðu fyrir tjóni og lagt fram kvittanir til Neytendasamtakanna. Þessi dómur og samkomulagið í kjölfar hans markar tímamót enda vitum við ekki af sambærilegu máli í nágrannalöndum okkar. Um leið er dómurinn viðvörun til markaðarins því ef fyrirtæki valda neytendum tjóni með háttalagi sínu getur það átt von á málsókn. Ný lög um hópmálsókn einfalda málin ef slík atvik koma upp. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Sjá meira
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun