Sló heimsmet á Grænlandsjökli - Vatnajökull stoppaði hann 9. febrúar 2012 14:55 Vatnajökull getur verið varhugaverður. mynd/ vilhelm gunnarsson
Fjallgöngumaðurinn Alex Hibbert hringdi í föður sinn þegar hann og félagi hans, Finn McCann, lentu í hrakningum uppi á Vatnajökli fyrr í vikunni. Fram kemur á vefsíðu Daily Mail að faðir Hibberts hringdi því næst í strandgæsluna í Bretlandi sem kom skilaboðum áleiðis til íslensku björgunarsveitanna. Félagarnir eru vægast sagt vanir göngumenn. Þeir hugðust ganga frá Kirkjubæjarklaustri, yfir Vatnajökul og þaðan til Hafnar. Þeir voru búnir að vera á ferðinni í mánuð þegar tjaldið þeirra gaf sig og þeir þurftu að kalla á aðstoð. Félagarnir gáfu sér allt að 50 daga til að ljúka þessari göngu. Áður hefur Hibbert unnið sér til frægðar að hafa gengið 2200 kílómetra yfir Grænlandsjökul hjálparlaust. Hann var 21 árs gamall þegar hann gekk yfir jökulinn og sló heimsmet með göngunni. Það var Björgunarsveitin á Hornafirði sem sótti félagana. Talsmaður bresku strandgæslunnar bendir hinsvegar ferðalöngum á að kynna sér neyðarnúmer þeirra landa sem þeir ætla að ferðast til.
Tengdar fréttir Breskir göngumenn í vandræðum upp á Vatnajökli Björgunarfélag Hornafjarðar var kallað út um klukkan hálf tíu í morgun til að sækja tvo breska ferðamenn sem eru í vandræðum í Norðlingalægð á miðjum Vatnajökli. Eru þeir blautir og hraktir og tjald þeirra brotið. 8. febrúar 2012 11:48 Búið að bjarga Bretunum Búið er að bjarga Bretunum sem voru fastir uppi á Vatnajökli. Það var björgunarfélagið á Hornafirði sem fór eftir þeim um klukkan tíu í morgun. Mennirnir voru blautir og hraktir og tjald þeirra brotið þegar þeir sendu neyðarkallið. Mennirnir voru mjög vel búnir til ferðalagsins. 8. febrúar 2012 14:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira
Breskir göngumenn í vandræðum upp á Vatnajökli Björgunarfélag Hornafjarðar var kallað út um klukkan hálf tíu í morgun til að sækja tvo breska ferðamenn sem eru í vandræðum í Norðlingalægð á miðjum Vatnajökli. Eru þeir blautir og hraktir og tjald þeirra brotið. 8. febrúar 2012 11:48
Búið að bjarga Bretunum Búið er að bjarga Bretunum sem voru fastir uppi á Vatnajökli. Það var björgunarfélagið á Hornafirði sem fór eftir þeim um klukkan tíu í morgun. Mennirnir voru blautir og hraktir og tjald þeirra brotið þegar þeir sendu neyðarkallið. Mennirnir voru mjög vel búnir til ferðalagsins. 8. febrúar 2012 14:25