Botnliðið fór á kostum og vann Snæfell | Voru búnar að tapa 11 í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2012 20:40 Fanney Lind Guðmundsdóttir hefur komið sterk inn í Hamarsliðið. Mynd/Daníel
Hamarskonur eru ekki búnar að segja sitt síðasta í Iceland Express deild kvenna í vetur því botnliðið vann 25 stiga sigur á Snæfelli, 82-57, í Hveragerði í kvöld. Hamar var með örugga forystu allan leikinn og endaði með þessum sigri ellefu leikja taphrinu sína. Hamar hafði ekki unnið leik síðan að liðið vann Val í Vodfone-höllinni í byrjun nóvember. Liðið hafði ennfremur tapað sjö síðustu heimaleikjum sínum í deildinni fyrir leikinn í kvöld. Katherine Virginia Graham var í fyrsta sinn í sigurliði í deildinni í vetur og var mjög öflug í liði Hamars með 23 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar. Samantha Murphy skoraði 25 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og þá bætti Fanney Lind Guðmundsdóttir við 14 stigum. Kieraah Marlow skoraði mest fyrir Snæfell eða 15 stig en Hildur Björg Kjartansdóttir var með 10 stig. Snæfellsliðið er að gera góða hluti í bikarkeppninni þar sem að liðið er komið alla leið í undanúrslit en liðið hefur aftur á móti tapað fjórum síðustu leikjum sínum í deildinni og er að missa af úrslitakeppninni sem sama áframhaldi. Hamar vann fyrsta leikhlutann 26-17, var með 17 stiga forskot í hálfleik, 43-26, og munurinn var orðinn 32 stig, 73-41, fyrir lokaleikhlutann.Hamar-Snæfell 82-57 (26-17, 17-9, 30-15, 9-16)Hamar: Samantha Murphy 25/8 fráköst/5 stoðsendingar, Katherine Virginia Graham 23/8 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Fanney Lind Guðmundsdóttir 14/4 fráköst, Jenný Harðardóttir 9/4 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 6/4 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 3/5 stoðsendingar, Álfhildur Þorsteinsdóttir 2/5 fráköst.Snæfell: Kieraah Marlow 15/8 fráköst/5 stolnir, Hildur Björg Kjartansdóttir 10/4 fráköst, Hildur Sigurdardottir 8/5 fráköst/8 stoðsendingar, Alda Leif Jónsdóttir 8, Björg Guðrún Einarsdóttir 6, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5/6 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 3, Ellen Alfa Högnadóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira