0-0-1 í Afríku Þórir Guðmundsson skrifar 5. október 2012 00:30 Morgunverður, hádegisverður, kvöldverður. Þessar alþjóðlegu matarvenjur halda okkur á lífi, gefa okkur starfsorku og eiga að duga okkur til lífs. Fólkið sem ég heimsótti nýlega í Vestur-Afríku þarf líka að borða þrisvar á dag til að halda sér gangandi en getur það ekki alltaf. Þegar sultarólin herðist tala menn um 0-0-1. Þá er enginn morgunmatur, enginn hádegismatur, eingöngu kvöldmatur. Nú er hungurtímabilið, vikurnar eða mánuðirnir frá því uppskeran frá í fyrra var uppurin og fram að næstu uppskeru. Í Gambíu varð nær algjör uppskerubrestur í fyrra, líkt og víðar á Sahel-svæðinu. Sjálfsþurftarbændur fengu aðeins einn fimmta af venjulegri hrísgrjónauppskeru. Hungurtímabil sumra, sem er venjulega einn til tveir mánuðir, varð fjórir til fimm. Í Síerra Leone skildi harðvítug borgarastyrjöld landið eftir sem rjúkandi rúst. Tugþúsundir ungmenna búa við ömurlegar aðstæður, munaðarlaus, atvinnulaus og vonlítil. Skólakerfið getur ekki tekið við þeim og fyrir þeim liggur að ráfa svöng um götur bæja og borga, verða byrði á frændfólki eða strita í námum myrkranna á milli. Í báðum þessum löndum hefur almenningur á Íslandi í gegnum Rauða krossinn gert nokkuð til að milda þjáningar þeirra verst stöddu. Í Gambíu tókst okkur í sumar að dreifa hrísgrjónaútsæði til 40 þúsund manna sem sáu annars fram á að geta ekki einu sinni plantað, og þar með ekki fengið neina uppskeru í október. Um sex þúsund fengu líka mat til að þrauka versta hungurtímabilið. Á hverju ári gefur Rauði krossinn á Íslandi 150 nauðstöddum ungmennum í Síerra Leóne tækifæri til náms, sem gerir þeim kleift að koma undir sig fótunum í einu fátækasta landi heims. Í menntaathvarfi Rauða krossins í Moyamba fá krakkarnir eina heita máltíð um miðjan dag. Laugardaginn 6. október hvetur Rauði krossinn almenning til að ganga til góðs. Þú getur fundið söfnunarstöð í hverfinu þínu eða skráð sig í gönguna á Gongumtilgods.is. Stutt og gleðileg laugardagsganga með rauðan bauk gerir okkur kleift að hjálpa börnum í neyð. Aðstoðin gefur börnum von og fleiri geta sagst næra sig 1-1-1. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Eiður Welding Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Björn B. Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Brosum breitt Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ert þú í tengslum? Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hin hljóða millistétt Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Af hverju er verðlag hér tvöfalt hærra en í Evrópu? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar hríðinni slotar Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Nemendalýðræði á brauðfótum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson skrifar Skoðun Þannig gæti Alþingi sameinast um orkumál Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Samfylkingin – Með og á móti Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stuðlar ekki að sérstöðu eins fyrirtækis á BSÍ Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Sex liða áætlun til að koma á jafnvægi í húsnæðismálunum. Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Hættur kynhlutleysisins Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Ólögleg áfengissala Ari Jónsson skrifar Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Gerræði ráðherranna Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Með lygina að vopni Páll Hermannsson skrifar Skoðun Leyfið til að drepa langreyði - óforsvaranleg ákvörðun Micah Garen skrifar Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun UNICEF skóli Laugardals við Kirkjuteig Tryggvi Scehving Thorsteinsson skrifar Skoðun Leggðu rafskútunni vel í Kópavogi Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Fjórar brýnar ástæður til að hætta viðskiptum við Rapyd Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Ekkert bús í búðir! Jódís Skúladóttir skrifar Skoðun Fiskeldi og Vestfirðir Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir skrifar Skoðun Bætt þjónusta og minni kostnaður, er hægt að biðja um það betra? Hrefna Eyþórsdóttir skrifar Sjá meira
Morgunverður, hádegisverður, kvöldverður. Þessar alþjóðlegu matarvenjur halda okkur á lífi, gefa okkur starfsorku og eiga að duga okkur til lífs. Fólkið sem ég heimsótti nýlega í Vestur-Afríku þarf líka að borða þrisvar á dag til að halda sér gangandi en getur það ekki alltaf. Þegar sultarólin herðist tala menn um 0-0-1. Þá er enginn morgunmatur, enginn hádegismatur, eingöngu kvöldmatur. Nú er hungurtímabilið, vikurnar eða mánuðirnir frá því uppskeran frá í fyrra var uppurin og fram að næstu uppskeru. Í Gambíu varð nær algjör uppskerubrestur í fyrra, líkt og víðar á Sahel-svæðinu. Sjálfsþurftarbændur fengu aðeins einn fimmta af venjulegri hrísgrjónauppskeru. Hungurtímabil sumra, sem er venjulega einn til tveir mánuðir, varð fjórir til fimm. Í Síerra Leone skildi harðvítug borgarastyrjöld landið eftir sem rjúkandi rúst. Tugþúsundir ungmenna búa við ömurlegar aðstæður, munaðarlaus, atvinnulaus og vonlítil. Skólakerfið getur ekki tekið við þeim og fyrir þeim liggur að ráfa svöng um götur bæja og borga, verða byrði á frændfólki eða strita í námum myrkranna á milli. Í báðum þessum löndum hefur almenningur á Íslandi í gegnum Rauða krossinn gert nokkuð til að milda þjáningar þeirra verst stöddu. Í Gambíu tókst okkur í sumar að dreifa hrísgrjónaútsæði til 40 þúsund manna sem sáu annars fram á að geta ekki einu sinni plantað, og þar með ekki fengið neina uppskeru í október. Um sex þúsund fengu líka mat til að þrauka versta hungurtímabilið. Á hverju ári gefur Rauði krossinn á Íslandi 150 nauðstöddum ungmennum í Síerra Leóne tækifæri til náms, sem gerir þeim kleift að koma undir sig fótunum í einu fátækasta landi heims. Í menntaathvarfi Rauða krossins í Moyamba fá krakkarnir eina heita máltíð um miðjan dag. Laugardaginn 6. október hvetur Rauði krossinn almenning til að ganga til góðs. Þú getur fundið söfnunarstöð í hverfinu þínu eða skráð sig í gönguna á Gongumtilgods.is. Stutt og gleðileg laugardagsganga með rauðan bauk gerir okkur kleift að hjálpa börnum í neyð. Aðstoðin gefur börnum von og fleiri geta sagst næra sig 1-1-1.
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun