Þrír arftakar helst nefndir Gunnar Reynari Valþórsson skrifar 26. ágúst 2012 20:19
Jóhanna Sigurðardóttir segist enn ekki hafa gert það upp við sig hvort hún ætli að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Samfylkingarinnar. Fari svo að hún hætti í pólitík eru þrír arftakar helst nefndir. Á flokkstjórnarfundi í gær sagði Jóhanna þetta, þegar hún var spurð út í framtíðina. „Nei ég hef ekki tekið ákvörðun um það. Allt hefur sinn tíma í pólitík, líka þetta." Þrátt fyrir að enn sé allt óljóst í málinu telja margir heimildarmanna fréttastofu innan flokksins líklegast að Jóhanna, sem verður sjötug í október og hefur setið á þingi frá árinu 1978, muni ekki sækjast eftir formannsembættinu á landsfundi sem áformaður er í byrjun næsta árs. Áður en til hans kemur heldur flokkurinn prófkjör í október eða nóvember. „Ég hef sagt það um mína flokksmenn að ég láti vita um það í góðan tíma áður en prófkjörin skella yfir," segir Jóhanna. Árni Páll Árnason þingmaður og fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar, sem lengi hefur verið orðaður við framboð til formanns, segir í viðtali við DV um helgina að hann sé algjörlega sannfærður um að þörf sé á sterkri og skýrri framtíðarsýn sem muni leiða landið og flokkinn í rétta átt. Hann segist þó ekki geta tekið ákvörðun um framboð til formanns strax, hann telji eðlilegt að heyra fyrst um áform Jóhönnu til framtíðar. Fari svo að Jóhanna hætti í pólitík hafa tveir arftakar, auk Árna, helst verið nefndir síðustu mánuði. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Katrín Júlíusdóttir verðandi fjármálaráðherra. Katrín var gestur Sigurjóns Egilssonar á Sprengisandi í morgun og þar var hún spurð hvort hún muni gefa kost á sér til formanns ákveði Jóhanna að hætta: „Jóhanna Sigurðardóttir er ennþá formaður Samfylkingarinnar. Ég fann fyrir mjög miklum stuðningi við að hún verði áfram á fundinum. Hún hélt mjög innblásna ræðu þannig að ég ég segi nú bara, af hverju ætti Jóhanna að hætta núna þegar við sjáum til sólar? Hún er búin að vera ofan í kjallara að moka kolageymsluna. Nú er hún orðin skínandi hrein og fín og af hverju fær hún ekki að koma upp og dekka borðið?"
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotshrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Sjá meira