Tóm hús valda hættu Karen Kjartansdóttir skrifar 26. ágúst 2012 19:47
Hætta stafar af tómum húsum þar sem hústökufólk hefur hreiðrað um sig. Slökkviliðsstjóri segir að slíkum húsum gæti hafa fjölgað í úthverfunum höfuðborgarinnar og hvetur almenning til að vera vakandi fyrir hættu sem af þeim getur stafað. Slökkviliðsstjóri segir eigendur húsa í miðbænum árbygari en áður þegar kemur að eldvörnum en var fyrir hrun. Í apríl 2008 hafi bráð hætta stafað af 68 eignum. Nú séu þær sautján. Hins vegar séu vísbendingar um að vandinn hafi færst úr miðbænum. Þannig sögðum við frétt í liðinni viku frá þrettán og fjórtán ára gömlum fíkniefnaneytendum sem höfðu komið sér fyrir í yfirgefnu húsi í Borgartúni. Búið er að loka fyrir dyr á því húsi og vonast Jón Viðar Matthíasson slökkviðlisstjóri höfðborgarsvæðisins til þess að það muni duga þar til nýr eigandi fer að vinna að endurbótum. Hér á Vatnstíg er hús sem bæði hefur komist í fréttir vegna hústökufólks og bruna. Þó ekki sé það fallegt segir hann það gott dæmi um góðan frágang eiganda. Gluggar eru byrgðir og hlið fest fyrir innkeyrslur. Það kemur í veg fyrir að hústökufólk komist inn og dregur þar með úr eldhættu „Varðandi miðbæinn þá hafa eigendur tekið sig virkilega á og miklar breytingar orðið hér á svæðinu. Húsnæði er komið í aðra notkun. Húsnæði sem var í niðurníðslu árið 2008 er nú jafnvel orðnar blómlegar verslanir og falleg á að líta. Það er náttúrulega mjög jákvætt," segir Jón Viðar, slökkviliðsstjóri. Svokallaður Hjartareitur hefur verið talsvert í fréttum undanfarin ár, af húsunum í nágrenni hans stafaði mikil eldhætta um tíma og kviknaði í oftar en einu sinni og kostaði einn bruninn mann lífið. Jón Viðar segir reitinn í raun hafa verið kveikjuna að því að slökkviliðið fór að taka málin föstum tökum. „Þegar við komum í eldsvoða verðum við alltaf að leita inn í húsi eins og það sé einhver inni. Við fundum einn einstakling sem hafði komið sér fyrir og náðum að koma honum út. Þegar við vorum búnir að slökkva og reyklosa sáum við að búið var að gera gat í gólf og handrið á stigagöngum voru farin þannig við vorum í raun og verum í töluverðri hættu líka," segir Jón Hann segir að erlendis hafa menn stigið það skref að hreinlega fara ekki inn í svona hús enda hafi þau kostað líf slökkviliðsmanna í gegnum tíðina. „Þetta hefur skánað mikið og við sjáum að hús hér í miðborginni sem við höfðum áhyggjur af áður eru orðin blómleg. En aftur á móti er spurning um hvort þetta er að færast úthverfin. Fólk þarf bara að vera vakandi fyrir þessu og láta heyra frá sér og þá er burgðist við en ábyrgðin er eigandans," segir Jón.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Fleiri fréttir Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Sjá meira