
Framtak til fyrirmyndar
Framtakið lýsir jafnframt sannfæringu fyrir því að með því að bjóða slíkt nám innan málm- og véltæknigreinarinnar gefast ný og áður óþekkt tækifæri í héraðinu til að efla tæknigrein sem aðrar þjóðir hafa byggt velferð sína á. Undirstaða alls þessa er þó að skólinn geti kennt verðandi iðnaðarmönnum hina nýju og heillandi tækni. Til þess þarf réttu tækin og kunnáttu kennara. Síðan er það fyrirtækjanna að nýta þá þekkingu til að færa út starfsemi sína með hönnun og framleiðslu verðmætra og eftirsóttra vara eða íhluta í stærri heildir.
Fordæmi FinnaÞað, sem gerir þessa atburðarás athyglisverða, er hið uppbyggilega samstarf sem tekist hefur milli skóla og atvinnulífsins á Sauðárkróki og hefur víða boðað nýja tíma eins og best sést í Finnlandi. Eftir hrunið þar upp úr 1990 varð Finnum ljóst að beina þurfti sjónum strax að skólakerfinu og stuðla að víðtækri samvinnu þess við atvinnulífið og sveitar- og svæðisstjórnir um allt land. Á hverju svæði var mótuð stefna um hvaða atvinnugreinar skyldi efla sérstaklega. Lykillinn var skýr framtíðarsýn í verk- og tæknimenntun og samvinna atvinnulífs, skóla og svæðisstjórna. Í kjölfarið voru styrktir einskonar fjöltækniskólar sem síðan hafa veitt hagnýta menntun og starfsþjálfun í samræmi við markaða atvinnustefnu á svæðinu. Afrakstur þessarar aðferðar Finna er verulegur og ekki þarf að efast um að þetta framtak Skagfirðinga mun á sama hátt færa þeim farsæld í framtíðinni.
Að bíða eftir öðrumEkki er vitað til að í aðdraganda þessa merka framtaks á Sauðárkróki hafi verið leitað „suður“ til að koma setrinu á fót. Hve oft er sá steinn klappaður að ekki sé nægur skilningur hjá þeim „fyrir sunnan“ á því að koma nauðsynlegum framfaramálum í framkvæmd? Einlægt er beðið eftir að þingmenn, ráðherrar eða eitthvert annað galdrafólk komi færandi hendi og bregði töfrasprota sínum á loft til að efla atvinnulífið. Þegar slík undur gerast ekki þá kvarta menn gjarnan sáran um skilningsleysi og jafnvel andúð fyrrnefndra á viðkomandi byggðarlagi. Verða af þessu öllu oft hin mestu leiðindi.
En Skagfirðingar létu ekki deigan síga í þessum efnum frekar en öðrum. Þess í stað tóku fyrirtæki á svæðinu, skólinn og sveitarfélagið saman höndum og leituðu út í hinn víða heim með góðra manna hjálp og úr varð tæknivætt hámenntasetur sem á eftir að lyfta verkmenntun í héraðinu á hærra stig.
Málinu fylgt eftirTil að leggja áherslu á vilja sinn og staðfestu afhentu samtök stuðningsaðila, sem kalla sig Sáttmála til sóknar, skólanum eina milljón króna við vígsluathöfnina til að markaðssetja hann. Það er vissulega gott fordæmi og til marks um að full alvara fylgir því að efla veg og virðingu málm- og véltæknigreinarinnar. Sú viðleitni verður áreiðanlega mikið gæfuspor fyrir þróun atvinnulífs í Skagafirði, hefur víðtæk áhrif og verður öðrum gott fordæmi. Ekki er vanþörf á þegar leitað er logandi ljósi um allt land að arðbærum og áhugaverðum störfum.
Skoðun

Fylgið fór vegna fullveldismáls
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er Ísrael ennþá útvalin þjóð Guðs?
Ómar Torfason skrifar

Flokkurinn hans Gunnars Smára?
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Raforkuverð: Stórnotendur og almenningur
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Hætt við að hækka ekki skatta á almenning
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Hver borgar brúsann?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Hvers vegna berðu kross?
Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar

Þannig gerum við þetta?
Ísak Ernir Kristinsson skrifar

Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Falleinkunn skólakerfis?
Helga Þórisdóttir skrifar

Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann
Margrét Reynisdóttir skrifar

Hvar er auðlindarentan?
Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni
Ómar Már Jónsson skrifar

Virði barna og ungmenna
Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sættir þú þig við þetta?
Jón Pétur Zimsen skrifar

Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum
Lúðvík Júlíusson skrifar

Lægri gjöld, fleiri tækifæri
Bragi Bjarnason skrifar

Tölum um stóra valdaframsalsmálið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna
Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar

Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Gott frumvarp, en hvað með verklagið?
Bogi Ragnarsson skrifar

Augnablikið
Magnús Jóhann Hjartarson skrifar

Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag
Bolli Héðinsson skrifar

„Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum
Eyrún Arnarsdóttir skrifar

Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál
Grímur Atlason skrifar

Í vörn gegn sjálfum sér?
Ólafur Stephensen skrifar