Innlent

Herðir eftirlit með hlerunum

Sigríður J. Friðjónsdóttir.
Sigríður J. Friðjónsdóttir.
Ríkissaksóknari, Sigríður J. Friðjónsdóttir, vill herða eftirlit með símhlerunum lögreglunnar. Hún hefur skrifað dómstólaráði bréf þess efnis að embætti hennar verði send afrit af dómsúrskurðum vegna símhlerana og sambærilegra úrræða jafnóðum og þeir eru kveðnir upp, hvort sem fallist er á kröfu lögreglu eða ekki. Þetta er liður í að endurskipuleggja og herða eftirlit embættis ríkissaksóknara með símhlerunum.

„Þessi beiðni nær einnig til dómsúrskurða um önnur skyld úrræði, eins og til dæmis eftirfararbúnað í bíla og hlustun á herbergi, svo dæmi séu nefnd,“ segir Sigríður.

„Embættið vinnur nú að því að kortleggja hvernig rétt sé að haga eftirlitinu svo það gagnist sem best, bæði hvað varðar hvernig lögregla og símafyrirtæki framkvæma hleranir, og með því að fá alla úrskurðina þannig að við höfum yfirsýn yfir þessi rannsóknarúrræði,“ segir Sigríður.

Hún segir að í framhaldi geti ríkissaksóknari gert lögreglu að láta vita með ákveðnu millibili af framkvæmdinni og tekið stikkprufur varðandi tæknilega útfærslu og framkvæmd hlerana. Dómstólaráð mun fjalla um beiðni Sigríðar á fundi 18. nóvember næstkomandi. „Ég vænti jákvæðra viðbragða enda hefur embættið lagaskyldu til þess að fylgjast með þessu,“ segir hún.

Ýmsir hafa orðið til að kalla eftir auknu eftirliti með símhlerunum að undanförnu. Þannig sagði Róbert Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, í grein í Fréttablaðinu í síðustu viku að verulegu máli skipti að eftirlit ríkissaksóknara með símhlustun lögreglu yrði eflt. „Varla er ofmælt að núverandi ástand í þeim efnum er óviðunandi,“ skrifaði hann.

Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, lét í ljós sömu skoðun í grein í Fréttablaðinu um nýliðna helgi.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að svo virtist sem eftirlit með símhlerunum hefði ekki verið sem skyldi á tímum sem meira fé hafi verið til ráðstöfunar úr ríkissjóði. Undanfarið hefði ríkissaksóknari ekki getað komið því við vegna fjárskorts. Ögmundur sagðist hafa vakið athygli ríkissaksóknara á málinu og bæta þyrfti eftirlitið. - jss



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×