Héraðsdómur hafnar 87 milljarða kröfu í Kaupþing 10. mars 2011 13:09
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að hafna beri 463 milljóna punda, eða rúmlega 87 milljarða kr., kröfu dótturfélags Kaupþings á eyjunni Mön í þrotabú Kaupþings. Það var Kaupthing Singer & Friedlander Isle of Man Limited (KSFM) sem gerði fyrrgreinda kröfu á hendur þrotabúi Kaupþings en KSFM var hluti af Kaupþingssamstæðunni fyrir hrunið haustið 2008. KSFM byggði kröfu sína m.a. á því að Kaupþing beri ábyrgð á skuldbindingum KSFM á grundvelli yfirlýsingar Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra samstæðu Kaupþings banka hf., til Fjármálaeftirlitsins á Mön 29. júní 2005. Í yfirlýsingunni kemur fram að það samrýmist viðskiptalegum hagsmunum Kaupþings banka hf. að Singer & Friedlander (Isle of Man) Limited haldi áfram að greiða skuldir sínar eftir því sem þær falli í gjalddaga og efni skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum. Því viðurkenni Kaupþing banki hf. að bankanum beri skylda, umfram þær lagalegu skyldur sem á honum kunni að hvíla, til að verja fjárhagslegan stöðugleika og til að tryggja að félagið sé ávallt í stakk búið til að standa við skuldbindingar sínar. Í dóminum segir að ekki liggur fyrir hvert var tilefni þessarar yfirlýsingar. Hins vegar ber hún með sér að henni er beint að Fjármálaeftirlitinu á Mön og tekur hún aðeins til skuldbindinga Singer og Friedlander, en ekki KSFM í máli þessu. Þegar af þeirri ástæðu getur KSFM ekki byggt rétt á yfirlýsingunni. Hefur hún því enga þýðingu við úrlausn málsins. Tekist var á um móðurfélagsábyrgð í málinu. Dómurinn tekur er undir það með Kaupþingi að málsástæða KSFM, þess efnis að móðurfélagsábyrgðin hafi leitt til óréttmætrar auðgunar, er vanreifuð. Þannig hefur KSFM ekki fært sönnur á þá fullyrðingu sína að ábyrgðin hafi verið forsenda fyrir yfirtöku og kaupum Kaupþings á fjármálafyrirtækinu Derbyshire Offshore og áframhaldandi og auknum viðskiptum viðskiptavina. Ekki hefur hann heldur sýnt fram á að móðurfélagsábyrgðin hafi verið nauðsynleg forsenda þess að Kaupþing millifærði háar fjárhæðir til sín í kjölfar yfirtökunnar. Loks ber fjárhæð kröfunnar og sundurliðun hennar í kröfulýsingu þess vitni að með henni er KSFM að krefjast greiðslu allra skuldbindinga sem ekki verða greiddar með eignum Kaupþings, en ekki aðeins þeirra innstæðna sem hann heldur fram að Kaupþing hafi millifært í kjölfar yfirtökunnar. Í því ljósi verður þessari málsástæðu KSFM hafnað.
Mest lesið Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Viðskipti innlent Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Sjá meira