Úlfur átti að þola ferðalag yfir hafið 4. febrúar 2011 10:10 þeir Ólafur og Jóhannes, martreiðslumenn á Sjávarkjallarnum að smakka Úlf, nýja bjórinn frá Borg Brugghúsi, sem jafnframt er fyrsti India pale ale bjórinn sem bruggaður er á Íslandi. Með þeim á myndinni er Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari Ölgerðarinnar en saman gæddu þeir sér á Úlfi og saltfiski.
Úlfur er nýr bjór frá Borg Brugghúsi og hann er jafnframt fyrsti India pale ale bjórinn sem framleiddur er hér á landi. India pale ale bjór á sér afar merkilega sögu og var fyrst bruggaður á 18. öld í þeim ákveðna tilgangi að þola siglingu yfir hálfan heiminn, eða frá Bretlandseyjum til Indlands. „Bragðið er einstakt og fyrir lengra komna, enda mikið notað af humlum" segir Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari Ölgerðarinnar. „Hlutverk Borgar er fyrst og fremst að kynna nýjar tegundir bjóra fyrir landsmönnum og við erum sérlega ánægðir með Úlf, enda á India pale ale bjórtegundin sér einstaka sögu". Áður hefur Borg Brugghús kynnt tvo bjóra; Bríó, sem var sérbruggaður fyrir gesti Ölstofunnar og nýtur mikilla vinsælda þar og Austur brúnöl, sem borinn er fram á veitingastaðnum Austur og þykir lostæti með góðri steik. Úlfur er nú fáanlegur í verslunum ÁTVR og það styttist í fjórða bjórinn frá Borg, sem ber heitið Bjartur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ölgerðinni.Þoldi ekki siglingu frá Bretlandi til Indlands India pale ale bjórar urðu til á 18. öldinni þegar nýlendustefna Breta var allsráðandi. Fjöldi breskra verslunarmanna og hermanna hafði komið sér fyrir á Indlandi og skip Austur-Indíafélagsins sigldu reglulega á milli Evrópu og Asíu. Skipin fóru yfirleitt drekkhlaðin til Evrópu en komu jafnan hálf eða tóm til baka. Breskir viðskiptajöfrar sáu augljós tækifæri í því að reyna að koma vörum til samlanda sinna í nýlendunum. Bjór var ofarlega á óskalista þeirra en siglingin til Indlands var allt of löng fyrir heðbundinn bjór. George Hodgeson, eigand Bow brugghússins, leysti þetta vandamál og notaði meira af humlum og alkahóli í bjórinn til þess að auka geymsluþol hans. Þannig komst hann óskemmdur á áfangastað. Fyrir vikið er beiskja India pale ale öflugri en bjóráhugamenn eiga almennt að venjast en þessi bjórstíll náði engu að síður útbreiðslu og varð mjög vinsæll.Indian pale ale nýtur mikilla vinsælda á vestruströnd USA Á 8. áratug 20. aldar skutu minni brugghús víða upp kollinum á vesturströnd Bandaríkjanna en þar eru einnig stærstu humlaræktunarsvæði landsins. Brugghúsin urðu fljótt leiðandi í mjög humluðum bjórum og kölluðu þá IPA (India pale ale). Nú er svo komið að IPA stíllinn er sá vinsælast meðal lítilla brugghúsa í Bandaríkjunum. Rómverski náttúrufræðingurinn Plinius sem ritaði alfræðirit um náttúruvísindi árið 78 e.kr. segir frá jurt sem hann kallar Lupus Salictarius, sem útleggst á íslensku „úlfur á meðal runna". Þessa plöntu þekkjum við nú undir latneska heitinu Humulus Lupulus, eða humall á íslensku. Þaðan fær Úlfur nafn sitt. Borg brugghús er framsækið brugghús þar sem meðal annars eru gerðar tilraunir með íslenskt hráefni og hæfileikar og sköpunarkraftur margverðlaunaðra bruggmeistara Ölgerðarinnar fær að njóta sín til hins ítrasta. Bjórar frá Borg Brugghúsi innihalda engin rotvarnar- eða litarefni og eru ógerilsneyddir.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira