Sjávarútvegur og hagfræðin Eygló Harðardóttir skrifar 30. júní 2011 06:00 Sérfræðingahópur sjávarútvegsráðherra hefur skilað skýrslu um áhrif breytinga á fiskveiðistjórnun. Þeirra niðurstaða er að bann við framsali og beinni/óbeinni veðsetningu dragi úr hagkvæmni sjávarútvegsins og getu hans til að fjármagna sig með ódýrasta mögulega hætti. Ráðherra og aðrir stjórnarliðar hafa varist með því að benda á að huga verði að öðrum þáttum en bara hagkvæmni greinarinnar. Stjórnarliðar virðast ekki ætla að svara rökum sérfræðinganna, heldur halla sér frekar að líffræðilegum og samfélagslegum rökum fyrir breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Ég tel að það séu mistök enda eru ágætis hagfræðileg rök fyrir því að takmarka brask með aflaheimildir og möguleika fyrirtækja til að fjármagna sig ótakmarkað með ódýrasta mögulega hætti. Eignaverðsbóla frá 2003Í ársbyrjun 1995 var verð á aflahlutdeild í þorski 260 kr/kg og mátti rekja hækkanir fram til 2001 til bættrar afkomu fyrirtækjanna og breytingum á úthlutun heildarafla. Eftir 2003 fóru einkavæddir bankar að lána ótæpilega og skuldir sjávarútvegsins margfölduðust um leið. Í júní 2008 náði verðið hámarki í 3.800 kr/kg, sem mátti fyrst og fremst rekja til offramboðs á ódýru lánsfé (Hrafn Sævaldsson, 2007). „Við hrun bankakerfisins hrundi verð á aflahlutdeildum um meira en helming þrátt fyrir að mikil lækkun á gengi krónunnar ætti að hafa gert aflahlutdeildir verðmeiri ef eitthvað er í krónum talið. Þessi þróun virðist benda til þess að verð á aflahlutdeildum á kvótamarkaði hafi ráðist meira af framboði á lánsfé í bankakerfinu en raunverulegu verðmæti aflahlutdeildar.“ (Jón Steinsson, 2010) Þessar sögulegu staðreyndir sýna að frá 2003 til 2008 myndaðist eignaverðsbóla (e. asset price bubble) á aflaheimildum. „Þegar eignaverð hækkar eykst aðgengi að lánsfé þar sem virði hins undirliggjandi veðs hækkar. Hækkandi eignaverði virðist einnig fylgja tilhneiging til að vanmeta áhættu á viðsnúningi eignaverðs og því skekkt áhættumat og hækkandi veðhlutföll (e. loan-to-value ratios). Allt þetta getur síðan fóðrað enn frekari hækkun eignaverðs sem kemur af stað vítahring þenslu og hækkandi eignaverðs sem að lokum endar með hörðum skelli þegar eignaverðsbólan springur.“ (SÍ Peningastefna eftir höft, 2010). Mat sérfræðinga Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri er að hækkun skulda frá 2003 hafi verið 50-60% vegna kaupa á aflaheimildum, 20-30% vegna fjárfestinga í ótengdum rekstri og afgangurinn, 10-15%, vegna taps á gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum. Á sama tíma stóð fjárfesting í rekstrarfjármunum líkt og skipum, tækjum og húsum í stað. (Stefán B. Gunnlaugsson, Ögmundur Knútsson & Jón Þorvaldur Heiðarsson, 2010) Ótakmarkað framsal og óbein veðsetning á aflaheimildum stuðlaði þannig að fjármálalegum óstöðugleika og slæmri nýtingu á fjármunum í aðdraganda hrunsins. Hluti af peningastefnuSjávarútvegur er undirstöðuatvinnugrein á Íslandi. Mikilvægt er að draga úr núverandi skuldsetningu og tryggja að aldrei aftur verði til eignaverðsbóla í greininni. Lausnin þarf hins ekki að vera boð og bönn í lögum um fiskveiðistjórnun. Seðlabankar hafa í auknum mæli verið að huga að eignaverðsbólum samhliða verðstöðugleika. Þar duga ekki stýrivextir einir til, heldur getur verið nauðsynlegt að taka upp s.k. þjóðhagsvarúðartæki til að tryggja fjármálalegan stöðugleika. Með þeim er horft á samspil þjóðarbúsins í heild, verðlagningu áhættu og tengsl fjármálastofnana og þeirra markaða sem þær starfa á. Beiting þjóðarhagsvarúðartækja kann að leiða til hærri fjármagnskostnaðar, en líta megi á það sem tryggingariðgjald sem þjóðfélagið greiði til að draga úr líkum á fjármálakreppu. Tæki sem mætti innleiða til að takmarka framsal í stað beins banns væri t.d. einhvers konar Pigou-skattur á söluandvirði aflaheimilda. Ef seljandinn endurfjárfesti ekki söluhagnaðinn í greininni þyrfti hann að borga mjög háan skatt. Önnur leið gæti verið að tengja skatta á fyrirtækin við þróun verðs á aflaheimildum. Takmarka mætti veðsetningu með því að setja þak á veðhlutfall skipa og miða við kostnað við nýsmíði. Eða að lán umfram ákveðið viðmið hefði neikvæð áhrif á eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja og þar með hvata þeirra til að lána óvarlega til sjávarútvegsins. Sjávarútvegur skiptir okkur öll máli. Við verðum því að vera tilbúin að ræða efnislega þær ábendingar sem fram koma til að lokaniðurstaðan verði til hagsbóta fyrir okkur öll. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Sjá meira
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun