Viðskipti innlent

Laxeldi á að skapa 50 störf

Fyrirtækið Arnarlax undirbýr eldi á þrjú þúsund tonnum af laxi í Arnarfirði. Norskt fyrirtæki, sem vinnur um níu þúsund tonn á ári, er bakhjarl fyrirtækisins. Beðið er eftir nauðsynlegum starfs- og rekstrarleyfum. Mynd/Víkingur Gunnarsson
Fyrirtækið Arnarlax undirbýr eldi á þrjú þúsund tonnum af laxi í Arnarfirði. Norskt fyrirtæki, sem vinnur um níu þúsund tonn á ári, er bakhjarl fyrirtækisins. Beðið er eftir nauðsynlegum starfs- og rekstrarleyfum. Mynd/Víkingur Gunnarsson
Fyrirtækið Arnarlax vinnur nú að því að fá starfs- og rekstrarleyfi fyrir eldi á þrjú þúsund tonnum af laxi í Arnarfirði. Áform eru uppi um að fullvinna afurðina á Bíldudal og myndi vinnslan skapa störf fyrir fimmtíu manns, að sögn Víkings Gunnarssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Hann segir norska eldisfyrirtækið Salmus vera bakhjarl fyrirtækisins. „Þeir eru brautryðjendur í Noregi í fullvinnslu á eldisfiski og vinna um það bil átta til níu þúsund tonn árlega," segir hann. Framkvæmdastjóri Salmus er Matthías Garðarsson sem ættaður er frá Bíldudal.

„Við erum komnir með úrskurð frá Skipulagsstofnun og umsókn um starfsleyfi er komin á borð Umhverfisstofnunar og í framhaldinu fer umsókn um rekstrarleyfi á borð Fiskistofu en þetta ferli getur tekið nokkra mánuði," segir Víkingur.

Hann er, eins og aðrir sem standa á bak við Arnarlax, frá Bíldudal og segir hann að vinnslan yrði kærkomin lyftistöng fyrir þorpið.

„Bíldudalur hefur misst um 60 prósent af íbúum sínum frá því að kvótakerfið var sett á laggirnar svo það væri mjög jákvætt ef af þessu gæti orðið."

Víkingur segir að nú þegar hafi verið gerðar mælingar á öllum aðstæðum í firðinum og hafi niðurstöður þeirra verið jákvæðar.

„Ég veit vel að laxeldi hefur gengið brösuglega á Íslandi en þetta verður unnið með mönnum sem hafa langa reynslu í þessum efnum í Noregi og ekki verður anað að neinu," segir Víkingur.

Norðmenn hafa undanfarin ár stóraukið eldi á laxi og er eldislax nú 58 prósent af heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða þar. Þeir fluttu út á síðasta ári 998 þúsund tonn af eldislaxi og nam útflutningsverðið rúmum 666 milljörðum íslenskra króna. Til samanburðar má nefna að heildarverðmæti útflutningsframleiðslu Íslendinga nam 220 milljörðum í fyrra.- jse






Fleiri fréttir

Sjá meira


×