Skiptastjóri Capacent vill lögreglurannsókn 4. mars 2011 05:00 Deilt er um hvort eignir Capacent sem skiptu um hendur í september hafi verið veðsettar Íslandsbanka. Fréttablaðið/arnþór
Skiptastjóri félagsins GH1, sem áður hét Capacent, hefur farið fram á að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsaki kaup á rekstri Capacent á Íslandi. Þykir leika grunur á að veðsettar eignir hafi verið seldar án heimildar veðsala. Þessu vísa forsvarsmenn Capacent alfarið á bug og íhuga meiðyrðamál gegn skiptastjóranum. Félag í eigu starfsmanna keypti í september rekstur og vörumerki Capacent í kjölfar þess að ekki tókst að semja um niðurfellingu á erlendu láni sem hvíldi á fyrirtækinu. Skiptastjóri eldra félagsins, Guðrún Helga Brynleifsdóttir, lýsti í nóvember yfir riftun á kaupunum og fór í lögbannsmál vegna notkunar á vörumerkjum félagins. Þeirri kröfu var hafnað í desember á þeim forsendum að kaupsamningurinn væri gildur. Enn hefur þó ekki fengist botn í aðfarargerð sem lögð var fram á sama tíma. Guðrún Helga segir að beðið sé niðurstöðu í því máli áður en riftunarstefnu verði þinglýst. Capacent sendi út tilkynningu um málið í nóvember. Þar segir að rétt hafi verið staðið að kaupunum og verðið hafi endurspeglað verðmæti hins keypta. Þá hafi þess verið sérstaklega gætt að ekki fylgdu veðsettar eignir. Með kaupunum hafi starfsmennirnir sýnt ábyrgð, því ef ekki hefði komið til kaupanna hefði rekstur Capacent stöðvast og um 90 starfsmenn misst vinnu sína. Haft var eftir Guðrúnu Helgu í Morgunblaðinu hinn 19. nóvember síðastliðinn að fjármunir veðsettir Íslandsbanka hefðu verið notaðir til að gera upp við aðra kröfuhafa þegar gengið hefði verið frá kaupunum. Stjórnendur Capacent hafna því hins vegar og segjast íhuga meiðyrðamál vegna ummælanna. Um mjög alvarlegar ásakanir sé að ræða sem geti valdið fyrirtækinu miklum skaða.- mþl
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Sjá meira