Tíminn er núna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 19. október 2011 21:00
Bíó. Midnight in Paris. Leikstjórn: Woody Allen. Aðalhlutverk: Owen Wilson, Rachel McAdams, Marion Cotillard, Kathy Bates, Adrien Brody, Corey Stoll, Michael Sheen, Carla Bruni, Léa Seydoux. Rithöfundurinn Gil Pender er staddur í París ásamt grunnhygginni tilvonandi eiginkonu sinni, íhaldssömum tengdaforeldrum og óþolandi vinapari. Enginn skrifar leiðinlegar persónur jafn skemmtilega og Woody Allen og áhorfandinn deilir stigvaxandi gremjunni með rithöfundinum. Óútskýranleg öfl verða síðan þess valdandi að hann kemst í beina tengingu við alla sína uppáhaldsrithöfunda, sem og aðra listamenn sem ólu manninn í París fyrr á öldum. Það er ekki nauðsynlegt að vera óforbetranlegur listasnobbari til að hlæja að Midnight in Paris. Yfirborðsþekkingin nægir, en eflaust eykst kátínan í beinu samhengi við það hversu vel áhorfandinn er að sér um Hemingway, Buñuel og Picasso. Midnight in Paris minnir um margt á The Purple Rose of Cairo, mynd Allens frá árinu 1985, en þar blandaði hann saman fyndinni ástarsögu og yfirnáttúru. Ástarsagan hér er falleg en um leið dapurleg. Öll höfum við hugsað til horfinna tíma með blik í auga og fundist sem nútíminn sé ómerkilegur og óspennandi í samanburðinum. Woody gamli veltir þessum hneigðum okkar fram og til baka og kemst að þeirri niðurstöðu að nútíminn sé ávallt bestur. Þó það nú væri, því hann á sér stað núna. Og einmitt núna er ný mynd eftir Woody Allen í bíó. Drífðu þig! Niðurstaða: Besta mynd Woody Allen síðan Match Point kom út.
Mest lesið Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Lífið Fleiri fréttir Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira