Formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ gagnrýnir fjármálaráðherra harðlega 8. september 2011 15:11 HS Orka. Bitbeinið sem tekist er á um.
Gunnar Þórarinsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segir það alvarlegri tíðindi en orð fá lýst, hafi fjármálaráðherra beitt sér á bak við tjöldin til að tryggja að ekkert yrði af uppbyggingu álvers í Helguvík, eins og Morgunblaðið heldur fram í grein Agnesar Bragadóttur í dag. Gunnar, sem er í Sjálfstæðisflokknum, segir slíka atlögu að atvinnumálum á Suðurnesjum, ógeðfellda og með öllu ólíðandi. Þá þykir Gunnari málið enn alvarlegra fyrir þær sakir að fjármálaráðherra ber fulla ábyrgð á fjárfestingarsamningi ríkisstjórnarinnar og Norðuráls, þar sem því er heitið að veita verkefninu fullan stuðning. Í ljósi þessa hlýtur ráðherra að íhuga tafarlausa afsögn að mati Gunnars. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði ekkert standa uppi á stjórnvöld á kaupum Magma á HS Orku en þar svaraði hún fyrirspurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun. „Þarna var verið að vinna drög að samningum, þetta var ekkert baktjaldamakk," svaraði Katrín og benti á að gögnin vísuðu til þess þegar ríkið, ásamt sveitarfélögum og lífeyrissjóðum hugðist kaupa hlut í HS Orku. „Um það fjölluðu drögin. Það er ekkert óeðlilegt að menn setji saman framtíðarsýn hvað það varðar - og það þarf ekki að vera til höfuðs framtíðarinnar," sagði Katrín við þetta tækifæri. Hún segir gögnin sem liggja fyrir í grein Morgunblaðsins, ágæta samantekt, en þar séu þó dregnar rangar ályktanir sem þurfi að skoða samhliða fjölmiðlaumfjöllun á sínum tíma. Steingrímur er staddur erlendis og því var hann ekki viðstaddur fyrirspurnir á Alþingi í morgun.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira